Óshlíðargöng

Óshlíðargöng yfirlitsmynd
Óshlíðargöng yfirlitsmynd

Jarðgöngin milli Ísafjarðarkaupstaðar og Bolungarvíkur verða um 5,1 km löng í bergi og heildarlengd vegskála er um 0,3 km, samtals er því um að ræða 5,4 km göng sem halla rúm 2% til beggja enda.

Verkið nær ennfremur til lagningar nýs vegar fyrir neðan byggðina í Hnífsdal og vegkafla frá Ósi og inn í Bolungarvík. Byggja á tvær brýr; yfir Hnífsdalsá og Ósá í Bolungarvík. Í gegnum göngin munu liggja ýmsir strengir, m.a. 66 KV háspennustrengur sem leysir af hólmi háspennuloftlínu.

Þversnið ganganna er hringlaga og er breidd þeirra um 8,0 m í veghæð en leyfileg hæð ökutækja er 4,2 m.


Óshlíðargöng - Kynningarbæklingur

Óshlíð Tunnel - Information booklet

Jarðgöng á leiðinni Bolungarvík – Ísafjörður - Kynningarskýrsla

Aðstæður til jarðgangagerðar milli Hnífsdals og Bolungarvíkur (PDF 2,1 MB)

Sjá einnig frétaflutning bb.is um framkvæmdirnar.



Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica