Héðinsfjarðargöng
Héðinsfjarðargöng er stærsta verkefni sem Vegagerðin hefur boðið út til þessa og var verksamningur milli Vegagerðarinnar og verktakans Metrostav a.s. og Háfell ehf undirritaður á Siglufirði þann 20. maí 2006.
Upphæð verksamnings er um 5,7 milljarðar króna en heildarkostnaður verksins er áætlaður rúmir 7 milljarðar.
Framkvæmdin er liður í að bæta samgöngur, auka umferðaröryggi og tengja Siglufjörð við Eyjafjarðarsvæðið og styrkja þannig byggð á svæðinu.
Framkvæmdin mun stytta leiðina milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar úr 62 km í um 15 km miðað við leið um Lágheiði og úr 234 km í 15 km miðað við leið um Öxnadalsheiði.
Helstu kennitölur:
Göng 1 (tvíbreið) Ólafsfjörður – Héðinsfjörður: 6,9 km
Göng 2 (tvíbreið) Héðinsfjörður – Siglufjörður: 3,7 km
Vegir: 3,2 km þar af 2 km í Siglufirði, 0,6 km í Héðinsfirði og 0,6 km í Ólafsfirði.
Vegskálar við alla fjóra gangamunna: alls 450 m
Áætlaður framkvæmdatími: 20. maí 2006 – 30. september 2010

