Útgefið gæðaskjal
Skjalnúmer:-654
Útgáfudagur:03/30/2011
Útgáfa:3.0
Ábyrgðarmaður:Ásbjörn Ólafsson
B B33.11 Framúrakstur bannaður

Reglugerð um umferðarmerki:
Merki þetta ber að nota þar sem bannað er að aka fram úr öðrum vélknúnum ökutækjum en tvíhjóla.

Vinnureglur um notkun utan þéttbýlis:
Merki þetta má nota á vegum með bundnu slitlagi með einni akrein í hvora átt þar sem mætivegalengd fer niður fyrir eftirfarandi mörk:
Leyfður
umferðarhraði
km/klst
Mætivegalengd
m
50
110
60
150
70
190
80
240
90
310
Mætivegalengd er skilgreind sem tvöföld stöðvunarvegalengd og 10 m öryggisbil að auki.
Stöðvunarvegalengd er sú vegalengd sem það tekur ökumann á hönnunarhraða vegar að stöðva ökutæki sitt við óvænta hindrum.

Merki B33.11 má setja upp beggja megin vegar þar sem sérstök ástæða er til vegna takmarkaðrar vegsýnar e.þ.h.
Merkið skal setja upp 150 - 300 m áður en komið er að viðkomandi svæði og skal lengd bannsvæðis tilgreind á undirmerki J02.11 .
Þegar banni við framúrakstri er lokið skal sett upp merkið B33.31 , banni við framúrakstri lokið, ef bannvegalengd er 500 m eða lengri.

Ef um er að ræða marga stutta samliggjandi kafla, þar sem vegsýn er takmörkuð af og til, má sameina þá undir eitt eða fleiri bannmerki með undirmerki J02.11. Miða skal við að lengd á milli merkja við slík tilfelli sé ekki minni en 2 km.

Merkið má einnig nota á sömu vegum, þar sem vegsýn getur boðið upp á að aka fram úr, en aðstæður að öðru leyti gætu gert framúrakstur hættulegan, t.d. ef hættuleg beygja er framundan, gangandi fólk eða börn, hættulegar brekkur, vegamót o.s.frv.

Sjá einnig skýringarmyndir í reglum um vinnusvæðamerkingar.