Vinnusvæðamerkingar

Nýjar reglur um vinnusvæðamerkingar tóku gildi 15.07.2009Merking vinnusvæða

Tilgangur þeirra er að koma á hertari reglum um merkingar fyrir almenna umferð í dreifbýli og þéttbýli vegna framkvæmda.

Reglurnar eru ætlaðar þeim verkkaupum, hönnuðum, verktökum og eftirlitsmönnum sem á einn eða annan hátt koma að undirbúningi og framkvæmd vega- og gatnagerðarmannvirkja svo og öðrum þeim stofnunum og fyrirtækjum sem vinna að framkvæmdum á eða við vegsvæði.

Tilgangur með merkingunum er fjórþættur:
  • Að vernda starfsmenn og vegfarendur
  • Að auka og tryggja umferðaröryggi almennt
  • Að lágmarka umferðartafir
  • Að hámarka framkvæmdahraða

Reglur um vinnusvæðamerkingar - 4. útgáfa 12.08.2010

Merkingar vinnusvæða - Teikningar og skýringar (PDF 11,9 MB)

Uppsetning umferðarmerkja - Handbók

Upplýsingar um lög og reglugerðir sem varða merkingar vinnusvæða er að finna hér:

Eldir reglur frá 2004:

Merking vinnusvæða - Inngangur og umferðarmerki (PDF 0,9 MB)

Merking vinnusvæða - Skýringarmyndir (PDF 3,7 MB)


Um eftirlit með merkingum vinnusvæða

Umsjónarmaður/eftirlitsmaður gerir skipulega úttekt á merkingu vinnusvæða a.m.k. fyrir hvern verkfund. Nota skal meðfylgjandi gátlista við úttektina. Niðurstöður úttekta á vinnustaðamerkingum skal skrá í verkfundagerðir og skal skila gátlistanum til Árangurs- og eftirlitsdeildar a.m.k. mánaðarlega á meðan á framkvæmdum stendur.

Gátlisti fyrir úttektir á merkingum vinnusvæða (xls)

Óútfyllt úttektareyðublað (xlsx)

Skýringar fyrir úttektareyðublað

Kostnaðaráætlunareyðublað vegna vinnusvæðamerkinga (xls)

Vinnuvæðamerkingar merkingaráætlun (xlsx)


Fyrirvari v. veftilvísana

Á vef Vegagerðarinnar eru birtir tenglar og tilvísanir, ýmist í reglugerðarsafn stjórnartíðinda og/eða lagasafn Alþingis.

Tenglar þessir eru ætlaðir til hægðarauka fyrir notendur vefs Vegagerðarinnar.

Engin ábyrgð er tekin á upplýsingum sem þar birtast og skal áréttað að ef misræmi er, gildir texti sem birtur er í Stjórnartíðindum.

Lög er að finna á slóðinni: www.althingi.is

Reglugerðir er að finna hér:
Reglugerðarsafn

Alþjóðasamninga má finna hér: www.umhverfisraduneyti.is

Helstu lagagögn og réttarheimildir: www.rettarheimild.is

Birtingar Stjórnartíðinda:
www.stjornartidindi.is



Leita á vefnum


Útlit síðu:

Stoðval


Þetta vefsvæði byggir á Eplica