Samgöngu­áætlun

Innviðaráðherra skal á hverju kjörtímabili leggja fram tillögu til þingsályktunar um stefnu í samgöngumálum, samgönguáætlun, til 15 ára fyrir Alþingi. Með henni setja stjórnvöld fram stefnu og markmið fyrir allar greinar samgangna. Samhliða skal leggja fram 5 ára áætlun um framkvæmdir, aðgerðaáætlun, fyrir fyrsta tímabil stefnunnar sem einnig skal endurskoðuð á hverju kjörtímabili. Ef forsendur breytast eða ef tilefni er til að öðru leyti leggur ráðherra fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um breytingu á stefnu og aðgerðaáætlun.

 

Samgönguáætlun tekur til stefnu, fjáröflunar og útgjalda allra greina samgangna, þ.e.a.s. flugmála, vegamála og siglingamála, þ.m.t. almenningssamgangna, hafnamála, sjóvarna, öryggismála og umhverfismála samgöngugreina. Þar skal skilgreina það grunnkerfi sem ætlað er að bera meginþunga samgangna og gera grein fyrir ástandi og horfum í samgöngum í landinu. Við gerð samgönguáætlunar skal m.a. byggja á þeim meginmarkmiðum að samgöngur séu greiðar, hagkvæmar, öruggar og umhverfislega sjálfbærar auk þess sem þær stuðli að jákvæðri byggðaþróun.

Lög um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála nr. 30/2023

Vefur samgönguáætlunar hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.

Samgönguáætlun 2026-2040

Ný samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt aðgerðaáætlun til 2030 var samþykkt á Alþingi 12. júní 2026. Lögð er áhersla á kraftmiklar og arðsamar framkvæmdir um land allt sem efla umferðaröryggi, greiða fyrir umferð, stytta tengingar milli byggða og atvinnusvæða og bæta lífsgæði íbúa. Ný jarðgangaáætlun er kynnt en þar eru Fljótagöng, Fjarðagöng, Súðavíkurgöng og Miklidalur og Hálfdán sett í forgang.

FRAMTÍÐARSÝN OG MEGINMARKMIÐ

Ísland verði í fremstu röð með trausta og örugga samgönguinnviði, öflug sveitarfélög, aukna verðmætasköpun og framsækna þjónustu.

Tækni tengi byggðir landsins og Ísland við umheiminn í jafnvægi við umhverfið.

Meginmarkmið áætlana innviðaráðuneytis:

  • Innviðir mæti þörfum samfélagsins.
  • Sjálfbærar byggðir og sveitarfélög verði um land allt.

Skoða Þingsályktun um samgönguáætlun fyrir árin 2026–2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026–2030

Tvöföldun Reykjanesbrautar.

Tvöföldun Reykjanesbrautar.


Vegvísir innviðaráðuneytisins

Vegvísi er ætlað að greiða aðgengi almennings að áætlunum innviðaráðuneytisins. Þar er hægt að nálgast ýmsar lykilupplýsingar til dæmis um fjármagn og markmið áætlana eða fylgjast með framvindu aðgerða í einstökum landshlutum.

Á Vegvísi er hægt að skoða markmið, einstök verkefni, raunstöðu þeirra og þá mælikvarða sem notaðir eru til að meta árangurinn. Á einfaldan hátt er hægt að sjá að hverju er verið að vinna í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og fagstofnunum sem undir það heyra.

Smelltu hér til að kynna þér Vegvísirinn