Fréttir
  • Umferðin hlutfallsleg aukning
  • Umferðin samanlögð
  • Umferðin eftir mánuðum
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin eftir vikudögum

Aðeins dregur úr hraða umferðaraukningar, en samt met

Umferðin eykst en ekki jafn hratt

6.5.2024

Umferðin á Hringvegi í nýliðnum apríl jókst um 1,8 prósent sem er heldur minni aukning en mánuðina þar á undan. Eigi að síður hefur aldrei mælst meiri umferð á Hringveginum í aprílmánuði. Frá áramótum hefur umferðin aukist um nærri sjö prósent sem er mikil aukning.

Milli mánaða 2023 og 2023
Eftir mikla aukningu umferðar, þrjá fyrstu mánuði ársins, reyndist aukningin í apríl ,,aðeins“ 1,8%, miðað við sama mánuð á síðasta ári fyrir 16 lykilteljara á Hringvegi.  Umferðin jókst einungis í tveimur svæðum eða Suðurlandi og í grennd við höfuðborgarsvæðið, en dróst talsvert saman á öðrum svæðum.  Þessi aukning dugði þó til að setja nýtt umferðarmet í apríl mánuði fyrir umrædda lykilteljara.  Alls fóru daglega um 92 þúsund ökutæki um lykilsniðin 16 miðað við rétt rúmlega 90 þúsund á síðasta ári.  Rétt að benda á að sama ökutæki getur mælst í fleiri en einu sniði.

8,3% aukning mældist yfir teljara við höfuðborgarsvæðið en umferðin dróst hins vegar saman um heil 17% á Norðurlandi, miðað við sama mánuð á síðasta ári.  

Ein skýring á þessum mikla samdrætti á Vesturlandi til Austurlands  kann að vera sú að færðin var töluvert verri í nýliðnum apríl miðað við sama mánuð á síðasta ári á þessum svæðum.


Samanburðartafla



 




Þróun umferðar frá áramótum
Núna hefur umferðin aukist um 6,6% frá áramótum, miðað við sama tímabil á síðasta ári. Þó að þetta sé talsverð aukning hafði umferðin aukist tvöfalt meira á sama tíma á síðasta ári.

Umferð eftir vikudögum
Það sem af er ári er mest ekið á föstudögum en minnst á laugardögum.  Umferð hefur aukist mest á sunnudögum en minnst á fimmtudögum.

Horfur út árið 2024
Þrátt fyrir frekar hógværa aukningu umferðar í apríl spáir reiknilíkan umferðar um 7,5% aukningu nú í ár.  Að teknu tilliti til hagvaxtarpár Seðlabankans o.fl. Er það mat umferðardeildar að það sé ekki innistæða fyrir svo mikilli aukningu umferðar nú í ár.  Sumarmánuðirnir munu hins vegar ráða mestu um það hvert muni stefna.