Almenn umsókn
Umsóknarfrestur: 02.01.2024 - 30.12.2024
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru.
Viltu vera á skrá?
Almennum umsóknum er ekki svarað sérstaklega.
Verkefni:
Verkefni og ábyrgð eru mismunandi eftir störfum.
Hæfniskröfur:
Hjá Vegagerðinni starfa um 350 starfsmenn með ólíkan bakgrunn og reynslu.
Við leggjum áherslu á
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góða samskiptahæfileika, jákvætt viðhorf og frumkvæði í starfi
- Góða íslensku- og enskukunnáttu
- Öryggisvitund
Skipulagseining:
Vegagerðin (10211)
Heimilisfang:
Suðurhrauni 3, 210 Garðabær
Tengiliðir:
- Laufey Sigurðardóttir
mannaudur@vegagerdin.is
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður fyrir öll kyn. Í umsókn þurfa að koma fram persónulegar upplýsingar ásamt þeirri hæfni og menntun sem viðkomandi hefur yfir að ráða. Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára og með gilt ökuskírteini ásamt því að vera með íslenska kennitölu.
Smelltu hér til að sækja um starfið
Starfshlutfall:
100%
Starfssvið:
Önnur störf
Launaskilmáli:
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Viðhald og eftirlit með tækjum og búnaði - vélaverkstæði Ísafirði
Umsóknarfrestur: 03.05.2024 - 16.05.2024
Við leitum að handlögnum starfsmanni á vélaverkstæði Vegagerðarinnar á Ísafirði.
Verkefni:
- Þjónusta við vélar, tæki og búnað á starfsstöðinni
- Viðhald og eftirlit með vetrarbúnaði, t.d. ferilvöktunarbúnaði, sanddreifurum, snjótönnum, snjóblásurum o.fl.
- Rekstur og þjónusta við bílabanka
- Umsjón með húsnæði og lóð svæðismiðstöðvar
- Afgreiðsla á vörum frá rekstrardeild
- Vörumóttaka
Hæfniskröfur:
- Sveinspróf sem nýtist í starfi, æskilegt
- Starfsreynsla sem nýtist í starfi, æskileg
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og hæfni að vinna í teymi
- Gott vald á íslensku
- Góð tölvufærni
- Góð öryggisvitund
Skipulagseining:
Vg 40 Vélaverkstæði Ísafirði
Heimilisfang:
Áhaldahús Dagverðardal, 400 Ísafjörður
Tengiliðir:
- Kristinn Gunnar K. Lyngmo
kristinn.g.k.lyngmo@vegagerdin.is
5221000
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og upplýsingar um þær hæfnikröfur sem óskað er eftir. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Smelltu hér til að sækja um starfið
Starfshlutfall:
100%
Starfssvið:
Iðnstörf
Launaskilmáli:
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Sérfræðingur - þjónustudeild á Suðursvæði
Umsóknarfrestur: 03.05.2024 - 15.05.2024
Vegagerðin auglýsir eftir öflugum einstaklingi til að sinna fjölbreyttum verkefnum á þjónustudeild Suðursvæðis. Suðursvæði Vegagerðarinnar nær frá Gígjukvísl á Skeiðarársandi að botni Hvalfjarðar og upp á miðhálendi. Svæðismiðstöð Suðursvæðis er á Selfossi en sérfræðingur getur einnig haft starfsstöð í Garðabæ.
Þjónustudeild hefur umsjón og eftirlit með sumar- og vetrarþjónustu á Suðursvæði og Höfuðborgarsvæði og öðru sem flokkast undir þjónustu á samgöngukerfinu, þ.m.t. malarvegir og landsvegir, ásamt framkvæmd smærri verkefna í samráði við aðrar deildir svæðisins og miðstöðvar.
Verkefni:
- Vinna við áætlanir og undirbúning þjónustuverkefna.
- Hafa umsjón/eftirlit með þjónustuverkefnum bæði tæknilega og fjárhagslega
- Vinna við undirbúning þjónustuverka, halda utan um magnuppgjör, áætlanagerð, kostnaðareftirlit, gæðaeftirlit, útboðslýsingar og verðkannanir.
- Sjá um verkfundi og skráningar í gagnabanka að loknum framkvæmdum.
- Önnur verkefni, sem falla undir starfsvið þjónustudeildar
Hæfniskröfur:
- Verkfræðingur, tæknifræðingur eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur metnaður
- Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
- Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir hverju sinni.
- Góð öryggisvitund
Skipulagseining:
Vg 20 Þjónustudeild Suðursvæði
Heimilisfang:
Breiðumýri 2, 800 Selfoss
Tengiliðir:
- Bjarni Stefánsson
bjarni.stefansson@vegagerdin.is
5221000
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með fjölbreytta verkefnaflóru.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Smelltu hér til að sækja um starfið
Starfshlutfall:
100%
Starfssvið:
Sérfræðistörf
Launaskilmáli:
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.