Opnun tilboða
Vetrarþjónusta 2021-2024, Vestur Ísafjarðarsýsla (EES)
Opnun tilboða 29. júní 2021. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir, á tilteknum leiðum í Vestur Ísafjarðarsýslu.
Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild til framlengingar til tveggja ára eitt ár í senn.
Heildarlengd vegakafla er 74 km.
Akstur vörubíla á snjómokstursleiðunum er áætlaður 31.000 km. á ári.
Verklok eru í apríl 2024.
Tilboð eru án virðisaukaskatts og miðast við samningstímann sem er 3 ár.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Steypustöð Ísafjarðar | 101.325.000 | 100,5 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 100.800.000 | 100,0 | -525 |