Opnun tilboða
Þorlákshöfn, Svartaskerbryggja, endurbygging þekju og lagna 2023
Opnun tilboða 18. apríl 2023. Hafnarstjórn Þorlákshafnar óskaði eftir tilboðum í verkið endurbyggingu þekju og lagna á Svartaskerbryggju í Þorlákshöfn
Helstu verkþættir eru:
· Rífa upp og saga malbik.
· Leggja vatnslagnir og ídráttarrör fyrir rafmagn.
· Steypa um rafmagnshús.
· Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypta þekju og malbik.
· Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju alls um 2350 m².
· Koma fyrir rafmagnskössum og vatnsbrunnum á bryggjunni.
· Malbika þekju um 5000 m².
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. október 2023.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Áætlaður verktakakostnaður | 179.899.100 | 100,0 | 31.043 |
Stálborg ehf., Garðabæ | 148.855.620 | 82,7 | 0 |