Suðurstrandarvegur (427), Krýsuvíkurvegur – Þorlákshafnarvegur, eftirlit
Article
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í eftirlit með gerð Suðurstrandarvegar (427), á milli Krýsuvíkurvegar og Þorlákshafnarvegar.
Verkið felst í nýbyggingu Suðurstrandarvegar á 33,6 km löngum kafla ásamt 2,3 km löngum tengingum við hann, smíði 12 m steyptrar bitabrúar á Vogsós neðan Hlíðarvatns í Selvogi, auk ræsa, grjótvarnargarða, reiðstígs og girðinga.
Gert er ráð fyrir að verkinu verði að fullu lokið fyrir 15. september 2011.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnivals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 30. júní 2008. Verð útboðsgagna er 8.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 12. ágúst 2008 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag og lesið upp hverjir hafa skilað inn tilboðum.
Síðari opnunarfundur verður þriðjudaginn 19. ágúst 2008 kl. 14:15 þar sem lesnar verða upp einkunnir bjóðenda í hæfnimati og verðtilboð opnuð.
Útboðið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Opnun tilboða 19. ágúst 2008.
Bjóðandi *) | Hæfnimat | Tilboð kr. |
Áætlaður verktakakostnaður | 39.200.000 | |
Almenna verkfræðistofan hf., Reykjavík |
48 |
27.642.473 |
Fjölhönnun ehf., verkfræðistofa, Reykjavík |
47 |
29.360.000 |
Hnit hf. verkfæðistofan, Reykjavík |
46 |
39.060.880 |
Línuhönnun hf., Reykjavík |
52 |
35.300.000 |
Verkfræðistofa Árborgar, Selfossi |
25 |
Verðtilboð ekki opnað |
VSB verkfræðistofa ehf., Hafnarfirði |
40 |
34.500.000 |
VSÓ - Ráðgjöf ehf., Reykjavík |
52 |
35.000.000 |
*) stafrófsröð