Laxárdalsvegur (59), Sýslumörk-Innstrandavegur
Opnun tilboða 9. ágúst 2022. Enurbygging Laxárdalsvegar á um 7,8 km kafla. Vegurinn verður að mestu endurbyggður í vegstæði núverandi vegar með nokkrum lagfæringum á plan- og hæðarlegu. Á vegkaflanum er einbreið brú yfir Laxá sem ekki á að endurnýja, og er nýr vegur aðlagaður að henni.
Helstu magntölur eru:
- Bergskeringar 19.100 m3
- Fyllingar 26.970 m3
- Fláafleygar 24.500 m3
- Ræsalögn 314 m
- Styrktarlag 29.970 m3
- Burðarlag, útlögn 15.230 m3
- Klæðing 49.100 m2
Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2023.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Íslenskir aðalverktakar hf., Reykjavík | 506.988.280 | 153,9 | 178.215 |
Skagfirskir verktakar ehf., Sauðárkróki | 452.915.950 | 137,4 | 124.142 |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 366.391.000 | 111,2 | 37.617 |
Áætlaður verktakakostnaður | 329.513.623 | 100,0 | 740 |
Þróttur ehf., Akranesi | 329.494.360 | 100,0 | 721 |
VBF Mjölnir ehf., Selfossi | 328.773.700 | 99,8 | 0 |