Opnun tilboða
Hafnarvegur (44), Stapafell – Hafnir, styrkingar og endurbætur
Opnun tilboða 18. apríl 2023. Styrking og endurmótun á 4,6 km kafla Hafnavegar, milli Stapafells og Hafna. Fræsa skal veginn upp, breikka, bæta við burðarlagi og leggja á klæðingu.
Helstu magntölur eru:
- Bergskeringar 825 m3
- Lögn stálræsa 36 m
- Fyllingar/styrktarlag og fláafleygar 8.985 m3
- Burðarlag 0/22 8.167 m3
- Tvöföld klæðing 35.981 m2
- Gróffræsun 30.000 m2
- Frágangur fláa og vegsvæðis 39.943 m
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 15. september 2023.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Áætlaður verktakakostnaður | 196.146.367 | 100,0 | 32.052 |
Óskatak ehf., Kópavogi | 179.375.000 | 91,4 | 15.281 |
Berg Verktakar ehf., Reykjavík | 173.500.000 | 88,5 | 9.406 |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 172.772.000 | 88,1 | 8.678 |
Auðverk ehf., Reykjavík | 164.094.500 | 83,7 | 0 |