Yfir­verk­stjóri á Selfossi

  • StarfsstöðSuðurland
  • DeildStjórnunarstörf
  • Starfshlutfall100%
  • Umsóknarfrestur20. maí 2025

Vegagerðin rekur 18 þjónustustöðvar víðs vegar um landið og sjá þær um almenna þjónustu og viðhald vega og vegbúnaðar á sínu starfssvæði. Hlutverk þjónustustöðva er að sjá til þess að ástand vega, vegsvæða og samgöngumannvirkja sé þannig að umferð gangi sem greiðast og öruggast fyrir sig, allan ársins hring.

Við leitum að einstaklingi í starf yfirverkstjóra á þjónustustöðinni á Selfossi. Þjónustusvæði þjónustustöðvar á Selfossi nær frá Hvolsvelli í austri að Bláfjallavegi og Krýsuvíkurvegi í vestri, auk hálendisvega að Hveravöllum og Þjórsá.

Helstu verkefni

  • Ber ábyrgð á rekstri og verkefnum þjónustustöðvarinnar og hefur yfirsýn yfir stöðu verkefna, framgang þeirra og kostnað
  • Stjórnun starfsfólks þjónustustöðvar
  • Eftirlit með færð á vegum, upplýsingagjöf og aðgerðastjórn í samvinnu við vaktstöð Vegagerðarinnar
  • Samskipti og eftirlit með verktökum
  • Leiðir öryggismál þjónustustöðvarinnar 
  • Umsjón með lagerhaldi og áhaldahúsi
  • Sér um minni verðkannanir, áætlanagerð og uppgjör

Hæfniskröfur

  • Marktæk reynsla af stjórnun skilyrði
  • Meistarapróf í iðngrein æskileg eða önnur menntun sem nýtist í starfi 
  • Góð þekking á landsvæði þjónustusvæðis æskileg
  • Stjórnendanám Stjórnendafræðslunnar eða sambærilegt er æskilegt 
  • Mjög góð tölvufærni
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum 
  • Útsjónarsemi og skipulagshæfni 
  • Góð íslensku- og enskukunnátta 
  • Góð öryggisvitund

Frekar upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Vörður félag stjórnenda á Suðurlandi hafa gert.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og upplýsingar um þær hæfnikröfur sem óskað er eftir, auk afrita af prófskírteinum og ökuréttindum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. 

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 350 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.

Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. 

Bjarni Stefánsson
Bjarni Stefánsson

bjarni.stefansson
@vegagerdin.is