Fjárfestingar Samgöngusáttmálans
Stofnvegir, Borgarlínan, virkir ferðamátar, öryggi og flæði
Heildarfjármögnun samgönguframkvæmda vegna Samgöngusáttmálans er 120 milljarðar samkvæmt verðlagi ársins 2019. Ríkið mun leggja fram 45 milljarða og sveitarfélög 15 milljarða. Gert er ráð fyrir að sérstök fjármögnun standi straum af 60 milljörðum kr. Hún verður tryggð við endurskoðun gjalda af ökutækjum og umferð í tengslum við orkuskipti eða með beinum framlögum við sölu á eignum ríkisins.
Fjárfestingar
Stofnvegir 52,2 ma.kr. 45%
Borgarlínan 49,6 ma.kr. 42%
Virkir ferðamátar 8,2 ma.kr. 7%
Öryggi og flæði 7,2 ma.kr. 6%
Alls um 120 ma.kr.
Á verðlagi ársins 2019.
Fjármögnun
Ríkið: 2 ma.kr. á ári í 15 ár. 30 ma.kr. 25%
Sveitarfélög: 1 ma.kr. á ári í 15 ár. 15 ma.kr. 12,5%
Keldnalandið 15 ma.kr. 12,5%
Flýti- og umferðargjöld 60 ma.kr. 50%
Alls um 120 ma.kr.
Á verðlagi ársins 2019.