Fréttir
  • 112 dagurinn

Viðbragðsaðilar standa vaktina í umferðinni á 112-deginum

Öryggi fólks í umferðinni er þema 112-dagsins.

10.2.2020

112-dagurinn verður haldinn um allt land á morgun, 11. febrúar, og er sjónum að þessu sinni beint að öryggi fólks í umferðinni. Til að minna á mikilvægi þess að fara varlega í umferðinni verður útkallstækjum viðbragðsaðila lagt á áberandi stöðum við helstu umferðaræðar á höfuðborgarsvæðinu á mestu annatímum í umferðinni. Útkallstæki lögreglu, slökkviliðs, björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Rauða krossins og Landhelgisgæslunnar verða sýnileg við helstu umferðaræðar kl. 8.00-9.00 og aftur kl. 16.00-17.30 á morgun. Samstarfsaðilar 112-dagsins utan höfuðborgarsvæðisins grípa víða til sambærilegra aðgerða.

Samstarfsaðilar 112-dagsins vara fólk sérstaklega við að nota síma og önnur snjalltæki undir stýri, enda sýna rannsóknir að þeir sem hafa hugann við slík tæki í akstri eru margfalt líklegri en aðrir til að valda umferðarslysum. Þeir hvetja jafnframt þá sem ganga og hjóla til að nota endurskin og vera þannig vel sýnilegir þeim sem fara um á bílum. Sjálfboðaliðar Slysavarnafélagsins Landsbjargar verða á fjölförnum stöðum víða um land á morgun og ætla að dreifa 17.000 endurskinsmerkjum Neyðarlínunnar, Landsbjargar og Samgöngustofu. Fólk er eindregið hvatt til að þiggja endurskinsmerkin og nota þau.

Forseti Íslands flytur ávarp

Í tilefni dagsins efna Neyðarlínan og samstarfsaðilar 112-dagsins til móttöku í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð kl. 16 á morgun með svohljóðandi dagskrá:

·        Ávarp: Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson

·        Verðlaun í Eldvarnagetrauninni 2019 afhent

·        Lögreglukórinn

·        Skyndihjálparmaður Rauða krossins útnefndur

Forsetinn mun afhenda hópi barna verðlaun fyrir þátttöku í Eldvarnagetraun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Hann mun einnig afhenda skyndihjálparmanni ársins viðurkenningu. Að athöfn lokinni kynnir hann sér starfsemina í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð og skoðar hana í fylgd þeirra sem hafa þar starfsemi.

Samstarfsaðilar 112-dagsins

112-dagurinn er samstarfsverkefni stofnana og félagasamtaka sem annast margvíslega neyðarþjónustu, almannavarnir og barnavernd í landinu. Þau eru: 112, Barnaverndarstofa, Embætti landlæknis, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Landhelgisgæslan, Landspítalinn, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Rauði krossinn, Ríkislögreglustjórinn, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Vegagerðin, Samgöngustofa og samstarfsaðilar um allt land.

112 er samræmt neyðarnúmer Evrópu og er dagurinn haldinn víða um álfuna til að minna á að aðeins þarf að kunna þetta einfalda númer til þess að fá aðstoð í neyð. Markmiðið með 112-deginum er að kynna neyðarnúmerið 112 og starfsemi aðilanna sem tengjast því, efla vitund fólks um mikilvægi þessarar starfsemi og hvernig hún nýtist almenningi. Markmið dagsins er enn fremur að efla samstöðu og samkennd þeirra sem starfa að forvörnum, björgun og almannavörnum og undirstrika mikilvægi samstarfs þeirra og samhæfingar. 

 

Viðbragðsaðilar standa vaktina í umferðinni á 112-deginum

Öryggi fólks í umferðinni er þema 112-dagsins. Varað við notkun snjalltækja undir stýri. Dreifa 17.000 endurskinsmerkjum til barna og fullorðinna. Skyndihjálparmaður Rauða krossins útnefndur. Verðlaun veitt í Eldvarnagetrauninni.