Fréttir
  • Kort af framkvæmdasvæðinu

Vestfjarðavegur um Dynjandisheiði og Bíldudalsvegur frá Bíldudalsflugvelli að Vestfjarðavegi á Dynjandisheiði

Mat á umhverfisáhrifum - tillaga að matsáætlun í kynningu

7.6.2018

Fyrirhugað er að endurbyggja Vestfjarðaveg (60) um Dynjandisheiði, á kafla sem nær frá Hörgsnesi í Vatnsfirði, langleiðina að Mjólkárvirkjun í Borgarfirði. Einnig er fyrirhugað að endurbyggja Bíldudalsveg (63) á kafla sem nær frá Bíldudalsflugvelli á Hvassnesi að Vestfjarðavegi í Helluskarði á Dynjandisheiði. Framkvæmdin er í tveimur sveitarfélögum, Vesturbyggð og Ísafjarðarbæ. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur milli sunnan- og norðanverðra Vestfjarða. Hún ásamt Dýrafjarðargöngum er lokahnykkurinn við gerð heilsárshringvegar um Vestfirði.

Kynningarfundir

Vegagerðin hefur lagt fram tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar og mun halda kynningarfundi um hana á eftirtöldum stöðum:

  - Mánudaginn 11. júní í Edinborgarhúsinu á Ísafirði kl.  17:00.

  - Þriðjudaginn 12. júní í Félagsheimili Patreksfjarðar á Patreksfirði kl.  17:00.

Allir eru velkomnir

 

Frestur til athugasemda er til 15. júní 2018.

Tillaga að matsáætlun og fylgiskjöl eru aðgengileg á heimasíðu Vegagerðarinnar og á heimasíðu Skipulagsstofnunar

Einnig má nálgast tillöguna hjá Skipulagsstofnun. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.

Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 15. júní 2018 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.