Fréttir
  • Myndin er tekin yfir Djúpafirði og horft út á Hallsteinsnes. Myndir/Haukur Sigurðsson
  • Kort sem sýnir framkvæmdir á sunnanverðum Vestfjörðum.
  • Framkvæmdir við þverun Þorskafjarðar standa yfir.
  • Hér má sjá jörðina Gröf og það er horft inn Þorskafjörð.
  • Hér sést slóði í tilvonandi veglínu í gegnum Teigsskóg, myndin er tekinn í átt að Gröf inn Þorskafjörð.
  • Unnið er að þverun Þorskafjarðar.

Vegur um Teigsskóg í útboð

Kafli frá Þórisstöðum í Þorskafirði að Hallsteinsnesi

28.1.2022

Stefnt er að því að bjóða út framkvæmdir við veg um Teigsskóg í Þorskafirði, frá Þórisstöðum að Hallsteinsnesi, í lok janúar eða byrjun febrúar, að sögn Sigurþórs Guðmundssonar, verkefnastjóra á framkvæmdadeild Vegagerðarinnar.

Útboð vegna framkvæmda við veg um Teigsskóg er í undirbúningi og má búast við að það verði auglýst á næstunni. Útboðskaflinn sem um ræðir er frá Þórisstöðum í Þorskafirði og liggur hann um Teigsskóg að Hallsteinsnesi og þar út í Djúpafjörð.

„Þetta er liður í uppbyggingu Vestfjarðavegar um Gufudalssveitina. Í grunninn til er Vegagerðin að þvera þrjá firði; Þorskafjörð, Djúpafjörð og Gufufjörð. Þegar framkvæmdum lýkur verður þetta mikil samgöngubót, þar sem vegfarendur losna við að aka um tvo erfiða hálsa, Hjallaháls og Ódrjúgsháls því vegurinn verður á láglendi,“ segir Sigurþór.

Þá verður þverun Gufufjarðar og Djúpafjarðar fljótlega boðin út en í því útboði eru tvær brýr. Í Gufufirði verður 130 metra löng brú en minni brúin í Djúpafirði verður 58 metrar.

„Þá er eftir stór brú yfir Djúpafjörð, sem verður 210 metra löng stálbrú,“ greinir Sigurþór frá.

Þegar er búið að bjóða út þverun Þorskafjarðar en þar verður byggð 260 metra brú, auk vegar frá Kinnastöðum að Þórisstöðum og framkvæmdir eru í fullum gangi.

„Framkvæmdum við Gufudalsveginn er lokið en þær hófust árið 2020. Sá vegur er í raun hluti af núverandi Vestfjarðavegi eins og staðan er núna, en hann verður síðar meir héraðsvegur. Í fyrrahaust voru svo boðnar út framkvæmdir vegna Djúpadalsleiðar, sem liggur frá Hallsteinsnesi inn í Djúpadal, sem er í Djúpafirði og eru framkvæmdir hafnar,“ upplýsir Sigurþór.

Um er að ræða umfangsmiklar framkvæmdir sem er skipt í sex áfanga. Þá er uppbygging vegar um Dynjandisheiði hluti af þessu verkefni. Þar er búið að byggja 10 kílómetra veg og Vegagerðin er nánast tilbúin  í útboð á næsta kafla sem verður um 12 km, en beðið er eftir fjármagni í það verk.   

Gangi allar áætlanir eftir verður hægt að keyra hringinn um Vestfirði á bundnu slitlagi í lok ársins 2024. Þar með verður kominn nýr vegur á Suðurfjörðunum sem styttir vegalengdina frá höfuðborgarsvæðinu til Ísafjarðar um 50 km.

Þessi grein birtist í 1. tbl. Framkvæmdafrétta 2022.    Rafræna útgáfu má finna hér.     Áskrift að Framkvæmdafréttum er án endurgjalds og hægt er að skrá sig fyrir áskrift með því að senda póst á sogi@vegagerdin.is.