Vatnaskemmdir á Austurlandi
Töluverðar skemmdir á vegum
Íslensk náttúra og íslenskt vetrarveður lætur ekki að sér hæða. Skemmdir urðu víða á vegum á Austurlandi í vatnsveðrinu sem þar gekk yfir um nýliðna helgi sem sjá má á yfirlitinu. Unnið er að viðgerðum svo sem kostur er.
Á Seyðisfjarðarvegi varð úrrennsli úr vegköntum á nokkrum stöðum í Lönguhlíð og Neðri Staf.
Í Fljótsdal og Fljótsdalshéraði urðu minniháttar skemmdir á nokkrum heimreiðum. Á Múlavegi í Skriðdal grófst vegur sundur utan við Borg.
Varnargarðar skemmdust við Jóku í Skriðdal. Á Skriðdals- og Breiðdalsvegi grófst vegur í sundur innan við Skriðuvatn og á Breiðdalsheiði rann yfir veg þannig að slitlag skolaðist úr vegi á kafla.
Í Breiðdal og Norðurdalur urðu smá skemmdir í vegköntum á þó nokkrum stöðum.
Norðfjarðarvegur í Norðfjarðarsveit: Ræsi fylltust og rann á nokkrum stöðum yfir veg þannig að smá skemmdir urðu á vegi og ræsaendum. Grænanesvegur í Norðfirði fór í sundur á 2 stöðum.
Hringvegur í Fáskrúðsfirði: Dalsá braut úr vegfyllingum með vegi á stuttum kafla. Rann yfir veg sunnan fjarðar á 10 stöðum þannig að úrrennsli varð úr vegfyllingum og vegköntum ásamt minni háttar skemmdum slitlagi auk skemmda á ræsaendum.
Vegur að Hafranes í Reyðarfirði grófst í sundur. Helgustaðavegur, úrrennsli á nokkrum stöðum.
Hringvegur í Berufjarðarbotni: Úrrennsli úr vegköntum og við ræsi á tveimur stöðum og lækir fóru upp úr farvegum á nokkrum stöðum með tilheyrandi skemmdum.
Vegur að Hofi í Álftafirði grófst sundur ásamt vegi að Hamarseli í Hamarsfirði á tveimur stöðum.
Davíð Þór Sigfússon, Vegagerðinni Reyðarfirði, tók myndirnar.