Fréttir
  • Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast vel með færð og veðri á umferdin.is

Útlit fyrir slæmt ferðaveður á gamlársdag

Vegfarendur hvattir til að fylgjast vel með umferdin.is

29.12.2022

Þeir sem eiga eftir að útrétta fyrir áramótin ættu að nýta föstudaginn 30. desember til þess. Líkur eru snjóbyl með skafrenningi aðfaranótt og að morgni gamlársdags á suðvesturhorni landsins og ekki gott að vera á ferðinni. Búast má við að færð á vegum verði þung og jafnvel komi til lokana. Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast vel með færð og veðri á umferdin.is ef ætlunin er að aka milli landshluta.

Ófært gæti orðið að morgni gamlársdags á suðvesturhorni landsins, Suðurlandi og á Vestfjörðum ef veðurspá gengur eftir. Klukkan sex að morgni gamlársdags gera spár ráð fyrir suðaustanátt, um 10 m/s, og snjókomu á höfuðborgarsvæðinu. Mestur verður vindurinn í efri byggðum um morguninn og ófærðin mun ráðast mest af styrk vindsins. Ófærð er líkleg á höfuðborgarsvæðinu bæði í húsagötum og stofngötum.

Líkur eru á slæmu ferðaveðri á gamlársdag en vegfarendur sem hyggja á ferðalög þurfa að fylgjast vel með upplýsingum á umferdin.is. Töluverðar líkur eru á að vegir verði illfærir eða ófærir allt frá Reykjanesi og austur að Vík.

Veðrið að kvöldi gamlársdags er enn óráðið en hugsanlega hvessir aftur með éljum og snjókomu þegar líður á daginn eða um kvöldið.

Vetrarþjónusta hjá Vegagerðinni er með hefðbundnu sniði eins og um helgi væri að ræða, bæði gamlársdag og nýársdag.

Á gamlársdag verður umferðarþjónustan í síma 1777 opin frá klukkan 6.30 til 22:00.

Á nýársdag verður umferðarþjónustan í síma 1777 opin frá klukkan 7:30 til 22:00.

Sólarhringsvakt er á vaktstöðvum Vegagerðarinnar alla daga ársins.

Fylgist vel með á umferdin.is