Fréttir
  • 150 milljónir króna skiptust á milli 66 verkefna.

Úthlutað úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar

150 milljónir skiptast á milli 66 verkefna

3.3.2021

Úthlutun úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar fyrir árið 2021 er lokið. Alls bárust 137 umsóknir og sótt var um samtals rúmlega 400 milljónir króna.

Sjóðurinn hafði að þessu sinni 150 milljónir krónur til ráðstöfunar. Rannsóknaráð Vegagerðarinnar valdi 66 verkefni sem hljóta styrk að þessu sinni. Verkefnin tengjast ýmsum þáttum sem varða vegagerð og byggingu samgöngumannvirkja á Íslandi. Umsækjendur og verkefnisstjórar hafa fengið send skeyti um samþykkt eða synjun en upplýsingar um verkefni sem fengu styrk verða birtar á vef Vegagerðarinnar innan skamms. 

Útgefnar rannsóknaskýrslur fyrri ára má finna á vef Vegagerðarinnar.