Fréttir
  • Umferðin hlutfall
  • Umferðin samtals
  • Umferðin eftir mánuðum
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin vikudaga

Umferðarmet á Hringvegi í október

aldrei hafa fleiri ekið á Hringveginum í október

3.11.2021

Aldrei hafa fleiri bílum verið ekið um Hringveginn í október en í þeim október sem nú er nýliðinn. Umferðin frá sama mánuði fyrir ári jókst um nærri 32 prósent sem er gríðarlega mikil aukning. Mesta aukningin er á Mýrdalssandi þar sem umferðin reyndist tvisvar og hálfu sinni meiri en í fyrra eða aukning upp á um 250 prósent.

Þetta vekur upp spurningar um hvað valdi og nærtækast er að líta til fjölgunar ferðamanna. Þeir eru eigi að síður töluvert færri sem nú koma til landsins en áður en kórónuveirufaraldurinn skall á. Hugsanlega er líka aukning á ferðum Íslendinga, að heimamenn séu enn að ferðast innanlands í auknum mæli. Ef til vill í stað ferða erlendis t.d. í vetrarfríum skólanna. Einnig verður að teljast líklegt að umsvifin í efnahagslífinu séu nú að aukast hratt. Þetta hefur þó ekki verið skoðað sérstaklega.

Milli mánaða 2020  og 2021
Mikil aukning varð á umferð í nýliðnum október mánuði borið saman við sama mánuð á síðasta ári eða tæplega 32%. Þessi aukning varð til þess að nýtt met var slegið í umferð um Hringveginn, yfir 16 lykilteljara Vegagerðarinnar, en aldrei áður hafa fleiri ökutæki farið yfir umrædd mælisnið í október.

Umferð jókst á öllum landssvæðum en mest yfir mælisnið á Norðurlandi eða um rúmlega 58%.  Af einstaka mælistöðum mældist mesta aukningin á Mýrdalssandi eða sem nam heilu 251%.  Þessi mikla aukning á Mýrdalssandi er þó ekki met aukning þar sem umferð á Hvalsnesi í Lóni jókst um 256% milli september mánaða 2020 og 2021.  Þessar miklu hlutfallsaukningar núna eru sjálfsögðu til komnar vegna þess að umferð dróst mikið saman á síðasta ári.  

Samanburðartafla










Umferð frá áramótum
Núna hefur umferð aukist um 12,5% frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári.  Hlutfallslega hefur umferð aukist mest um Austurland eða um 29%.

Umferð eftir vikudögum
Það sem af er ári er mest ekið á föstudögum en minnst á laugardögum.  Umferð hefur aukist mest á sunnudögum eða um 16% en minnst hefur aukningin orðið á fimmtudögum eða 10% 

Horfur út árið 2021
Nú þegar aðeins tveir mánuður eru eftir af árinu má búast við því að umferðin í ár aukist um 13,5% miðað við síðasta ár.  Verði af þessari aukningu dugar hún samt ekki til þess að fara upp fyrir árið 2019 og yrði um 2% minni en það ár.