Fréttir
  • Umferðin samanlagt
  • Umferðin hlutfallsleg breyting
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin eftir mánuðum
  • Umferðin eftir vikudögum

Umferðarmet á höfuðborgarsvæðinu í janúar

metið slegið frá árinu 2019

3.2.2023

Mikil aukning varð í umferð á höfuðborgarsvæðinu í janúar en rétt einsog á Hringveginum var umferðarmetið frá árinu 2019 slegið en umferðin var um prósenti meiri en þá. Umferðin var síðan heilum 12 prósentum meiri í nýliðnum janúar en í sama mánuði fyrir ári síðan.

Milli mánaða 2023 og 2022
Líkt og á Hringvegi varð mjög mikil aukning í umferð í nýliðnum janúar á höfuðborgarsvæðinu, fyrir þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar, borið saman við sama mánuð á síðasta ári.  Umferðin reyndist vera 12,1% meiri en á síðasta ári, sem er svipuð aukning og varð á Hringvegi, og 1,0% meiri en fyrra met á höfuðborgarsvæði, sem sett var árið 2019.

Mest jókst umferðin um mælisnið á Hafnarfjarðarvegi eða um 15,0% en minnst um mælisnið ofan Ártúnsbrekku eða um 10,2%.

Umferð eftir vikudögum
Umferðin reyndist hafa aukist mjög mikið alla vikudaga nema á mánudögum, en þar varð ,,aðeins“ 2,6% aukning. Mest jókst umferð á laugardögum eða um 25,3%.

Mest var ekið á föstudögum, í nýliðnum janúar, og minnst á sunnudögum.