Fréttir
  • Covid daglegur munur vika 51
  • Covid umferðin það sem af er ári 21.12.2020

Umferð eykst heldur

minnkandi áhrif Covid-19 reglna

21.12.2020

Umferðin í liðinni viku jókst nokkuð frá vikunni áður eða um átta prósent en var eigi að síður meira en 11 prósentum minni en í sömu viku í fyrra. Ljóst er að umferð er heldur að aukast en reyndar jókst umferðin í þessari viku fyrir jól mikið í fyrra. Hún jókst minna í ár en þá. Veðurfar hefur alla jafna nokkur áhrif á þessum árstíma sem gerir samanburð erfiðan.

Umferðin í nýliðinni viku, eða viku 51, yfir þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu reyndist rúmlega 8% meiri en í vikunni þar á undan eða viku 50. Sé umferðin hins vegar borin saman við sömu viku á síðasta ári reyndist umferðin 11,5% minni.  Þegar aftur er horft til síðasta árs er þetta er heldur meiri samdráttur en varð í síðustu viku en þegar horft er til umferðarinnar innan ársins er tilhneigingin klárlega sú að umferð er að aukast jafnt og þétt og er þetta sjötta vikan í röð þar sem umferð eykst á milli vikna, eins og sjá má á línuriti B.  Sama línurit sýnir einnig að umferðin á síðasta ári og þar á undan jókst hins vegar meira, en nú í ár, því reyndist samanburður við síðasta ár óhagstæðari en í síðustu viku.

Mismunur milli ára í viku 51 eftir mælisniðum:
Hafnarfjarðarvegur við Kópavogslæk       -15,2%
Reykjanesbraut við Dalveg                            -7,3%
Vesturlandsvegur ofan Ártúnsbrekku        -10,2%