Töluvert mikil aukning í umferðinni í nóvember
Umferðin á Hringveginum jókst um 7,2 prósent
Umferðin um 16 lykiltalningarstaði Vegagerðarinnar á Hringveginum jókst um 7,2 prósent í nýliðnum nóvember mánuði. Mest jókst umferðin á Suðurlandi og þar mest um teljara á Mýrdalssandi. Þar jókst umferðin um 30 prósent. Útlit er fyrir að umferðin aukist um meira en 10 prósent í ár, sem yrði næstmesta aukningin a.m.k. síðan 2005.
Milli
mánaða 2016 og 2017
Umferðin
jókst um 7,2% í nýliðnum nóvember þrátt fyrir talsverða ófærð. Mest jókst
umferðin um Suðurland eða um tæp 11% en minnst varð aukningin um Austurland eða um 2,8%. Hvað varðar einstaka talningarstaði þá jókst umferðin lang mest um
teljara á Mýrdalssandi eða um rúmlega 20%. Minnst jókst umferðin um
talningasnið í Kræklingahlíð norðan Akureyrar en þar varð tæplega 3% samdráttur
í umferð miðað við sama mánuð á síðasta ári.
Frá
áramótum milli áranna 2016 og 2017
Nú hefur
umferðin aukist um 10,6% frá áramótum um mælisniðin 16. Þetta er
aðeins minni aukning en á sama tíma á síðasta ári en sú næst mesta frá því að
þessi samantekt hófst.
Mest hefur umferðin aukist um Suðurland eða um 15,4% en minnst um Vesturland eða um 8,7%.
Umferð
eftir vikudögum
Umferðin
hefur vaxið hlutfallslega mest á þriðjudögum, eða um 12,1%. Minnst hefur
umferðin vaxið á sunnudögum eða um 8,6%. Minnst er ekið á þriðjudögum og
mest á föstudögum.
Horfur
út árið 2017
Gert er ráð fyrir að umferðin aukist um 8% í desember miðað við sama mánuð á síðasta ári. Gangi sú spá eftir mun umferðin aukast um 10,5% yfir mælisniðin 16, sem yrði þá næst mesta aukning, í þessum sniðum, frá því að þessi samantekt hófst.
Athygli er vakin á því að Hringvegur var færður 11. nóvember sl. niður á firði og um Fagradal í stað þess að hann lægi um Breiðdalsheiði. Því var teljara við Gíslastaðagerði (gamalt vegnr. 1-t5) skipt út fyrir teljara á Fagradal (nýtt vegnr. 1-t6).