Fréttir
  • Þingvallavegur lokaður - hjáleið

Þingvallavegur (36) lokaður en hjáleið um Vallaveg (361)

Þingvallavegur líklega lokaður fram á haust

12.4.2019

Nú eru að hefjast seinni hluti framkvæmda við endurbætur á Þingvallavegi, frá Þjónustumiðstöðinni og að vegamótum við Vallaveg.  Vorið 2019 verður Þingvallavegi (36) lokað fyrir allri umferð frá og með miðvikudeginum 24. apríl 2019. Búast má við að vegurinn verði lokaður fram á haust. 

Bent er á að veginum verður lokað austan við Þjónustumiðstöðina þ.a. aðgengi að henni verður óbreytt. Áður en framkvæmdir hefjast verður Vallavegur lagfærður eins og hægt er, en bent er á að vegurinn er mjór og hentar illa fyrir stærstu bíla. Vegagerðin óskar eftir því að ferðaþjónustufyrirtæki noti minni bíla, eins og kostur er, á meðan framkvæmdir standa yfir. 

Myndin sýnir hjáleið um Vallaveg (grænn) á meðan Þingvallavegur (rauður) er lokaður.