Tæplega 14% minni umferð á Hringvegi árið 2020 en árið 2019
Aldrei meiri samdráttur mælst
Umferðin á Hringveginum árið 2020 dróst saman um 13,6 prósent miðað við árið 2019, þetta er langmesti samdráttur sem mælst hefur. Hann er tveimur og hálfu sinnum stærri en sá sem mældist á milli áranna 2010 og 2011. Umferðin í desember dróst saman um 7,3 prósent.
Milli
mánaða 2019 og 2020
Umferðin,
um 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi, dróst svipað saman og umferðin á
höfuðborgarsvæðinu eða um 7,3%. Mest dróst umferð saman á Suðurlandi eða um tæp 22%
en minnst, utan höfuðborgarsvæðis, um Norðurland eða um 12%. Ekki hefur mælst minni umferð
í desember á Hringvegi síðan árið 2016.
Af einstaka stöðum þá varð mestur samdráttur um mælisnið á Mýrdalssandi eða tæplega 72% samdráttur en minnst, utan höfuðborgarsvæðis, um mælisnið í Kræklingahlíð norðan Akureyrar eða 4,5% samdráttur.

Umferð
eftir vikudögum
Umferðin á
síðasta ári dróst saman í öllum vikudögum en mest á sunnudögum eða um rúmlega 18%
en minnst á þriðjudögum eða um tæp 11%. Eins og vænta mátti er mest ekið á
föstudögum en örlítið óvænna að minnst var ekið á laugardögum, því alla jafna
hafa þriðjudagar þá stöðu.
Frá
áramótum
Nú liggur
það fyrir að umferðin á Hringvegi dróst saman um 13,6%, yfir umrædd mælisnið.
Líkt og á höfuðborgarsvæðinu er þetta langstærsti samdráttur frá því að þessar mælingar
hófust eða rúmlega tveimur og hálfu sinnum stærri en á milli áranna 2010 og
2011.
Mest dróst umferð saman um mælisnið á Austurlandi eða um tæplega 29% en minnst, utan höfuðborgarsvæðis, um Vesturland eða um tæplega 18%.
Talnaefni