Fréttir
  • Suðurstrandarvegur skemmdir mars 2021 myndir 19. mars

Suðurstrandarvegur áfram lokaður

ástandið svipað og heldur verra

19.3.2021

Ástand Suðurstrandarvegar við Festarfjall er svipað og var í gær en hefur heldur þróast til verri vegar. Í ljósi áframhaldandi jarðskjálftavirkni og spár um rigningu á svæðinu næsta daga hefur verið tekin sú ákvörðun að halda veginum lokuðum a.m.k. fram yfir helgi. Fylgst verður náið með ástandinu um helgina og ákvörðun um framhaldið tekin í byrjun næstu viku.

Við skoðun í morgun komu í ljós nýjar sprungur og hefur sigið aðeins meira á þeim stöðum sem vegurinn hafði sigið áður. 

Neyðaraðilar, í samráði við Vegagerðina, geta farið um Suðurstrandarveg reynist þess þörf en mælt er með að menn aki hlíðar megin á veginum og verður tryggt að hin akreinin sé óaðgengileg og er það gert með gátskjöldum.     

Bætt verður við skiltum til að láta vegfarendur vita með lengri fyrirvara en áður, hvorttveggja í Grindavík og við Þorlákshöfn.