Fréttir
  • Summa meðalumferðar á dag yfir 16 lykilteljara á Hringvegi.
  • Samanlögð meðalumferð á dag yfir 16 lykilteljara í júní, á Hringvegi
  • Hlutfallslegur mismunur lykilteljara á Hringvegi milli áranna 2021 og 2022.
  • Vísitala umferðar um 16 lykilteljara á Hringvegi borin saman við vísitölu hagvaxtar.
  • Vísitala meðalumferðar eftir landsvæðum yfir 16 lykilteljara á Hringvegi.
  • Meðalumferð eftir vikudögum frá áramótum.
  • Uppsöfnuð meðalumferð í hverjum mánuði yfir 16 lykilteljara á Hringvegi.
  • Umferð á Hringvegi eftir landsvæðum.

Stefnir í að umferðin í ár verði jafn mikil og metárið 2018

Aldrei meiri umferð í júní á Hringvegi

7.7.2022

Umferðin í nýliðnum júní er sú mesta sem mælst hefur yfir 16 lykilteljara Vegagerðarinnar í júní en hún reyndist vera tæpum 6% meiri en í sama mánuði á síðasta ári og rétt rúmum 2% yfir gamla metinu, sem sett var árið 2019. 
Útlit er fyrir að umferðin sé að ná fyrri styrk eftir bakslag vegna Covid-19 árið 2020 og 2021.

Hlutfallslega jókst umferðin mest á Austurlandi eða tæp 35% en minnst jókst umferðin við og í kringum höfuðborgarsvæðið eða um 1,4%.

Frá áramótum

Það sem af er ári hefur umferðin nú aukist um 3,6%.  Mest hefur uppsöfnuð umferð aukist um mælisnið á Austurlandi en minnst um mælisnið á og í grennd við höfuðborgarsvæðið en þar mælist ennþá tæplega 1% samdráttur. 

Umferð eftir vikudögum

Frá áramótum hefur umferð aukist hlutfallslega mest á miðvikudögum en mánudagar mælast með um hálft prósent samdrátt.

Mest er ekið á föstudögum og minnst á laugardögum.

Horfur út árið

Núna stefnir í að umferðin geti aukist um 3,5% miðað við árið 2021. Gangi sú spá eftir yrði slegið nýtt met í umferðarmagni en þó aðeins rétt 0,2% meiri en hún hafði mest mælst, en það var árið 2018.  Svo segja má að umferðin árið 2022 stefni í að vera jafn mikil og hún var árið 2018.