Fréttir
  • Þverun Þorskafjarðar - Dofri Eysteinsson og Bergþóra Þorkelsdóttir
  • Þverun Þorskafjarðar - Dofri Eysteinsson og Bergþóra Þorkelsdóttir
  • Tölvuteiknuð mynd af brúnni yfir Þorskafjörð.
  • Tölvuteiknuð mynd af brúnni yfir Þorskafjörð.
  • Tölvuteiknuð mynd af brúnni yfir Þorskafjörð.

Skrifað undir verksamning um þverun Þorskafjarðar

Vegagerðin og Suðurverk 

8.4.2021

Forstjóri Vegagerðarinnar og framkvæmdastjóri  Suðurverks hf. rituðu undir verksamning um þverun Þorskafjarðar á Vestfjarðavegi (60) um Gufudalssveit fimmtudaginn 8. apríl. Verkið felur í sér þverun Þorskafjarðar og er liður í lúkningu umfangsmikillar vegagerðar á sunnanverðum Vestfjörðum undanfarin ár. Suðurverk hf. átti lægsta tilboðið í verkið.

Tilboð voru opnuð 16. febrúar 2021 en um er að ræða nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 2,7 km kafla yfir Þorskafjörð. Innifalið í verkinu er bygging 260 m langrar steyptar brúar á Þorskafjörð. Ber verki heitið Vestfjarðavegur (60) um Gufudalssveit, Kinnarstaðir - Þórisstaðir.

Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar sagði við undirskriftina að það væri fagnaðarefni að fara í þessa framkvæmd og að nú hyllti undir lok á viðamiklum vegaframkvæmdum á sunnanverðum Vestfjörðum. Hún benti á að með gerð Dýrafjarðarganga, vegi um Gufudalssveit og þverun Þorskfjarðar styttist leiðin milli Ísafjarðar og Reykjavíkur um 50 km og munaði um minna. Þverun Þorskafjarðar ein og sér styttir vegalengdina um 10 km.

Dofri Eysteinsson framkvæmdastjóri Suðurverks hf. var einnig ánægður með verkið og leist vel á, hann benti á að Suðurverksmenn þekktu gjörla til svæðisins og fjarðaþverana en þeir hefðu þverað Dýrafjörð árið 1989 og síðar Kjálkafjörð og Mjóafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum. Hann sagðist hlakka til verksins sem hæfist strax í næstu viku.

Fjallað var um verkefnið í 2. tbl. Framkvæmdafrétta þar sem segir að um sé að ræða nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 2,7 km kafla við austanverðan Þorskafjörð, rétt sunnan við raflínuna sem þar liggur yfir. Byggð verður 260 m löng brú auk fyllingar. Vegurinn er alfarið byggður í nýju vegstæði en tengist núverandi Vestfjarðavegi í báða enda. Nyrðri endinn tengist við gamla veginn þar sem hann liggur upp Hjallaháls.

Tilboð voru opnuð 16. febrúar en Suðurverk hf. átti lægsta tilboðið upp á 2.078.354.246 krónur. Næst hæsta tilboðið átti Þróttur ehf. en aðrir sem buðu í verkið voru Þ G verktakar, Ístak hf. og Íslenskir aðalverktakar hf.

Gert er ráð fyrir að verktaki geti hafið framkvæmdir við undirritun samnings, líklega í mars eða apríl á þessu ári. Áætlað er að útlögn fyllingar/fargs verði lokið í lok júní á þessu ári en að smíði brúar og frágangi við hana verði lokið í lok september á næsta ári. Verkinu öllu á síðan að ljúka í júní 2024.

Verktíminn er rúm þrjú ár sem skýrist af því að fergja þarf botn fjarðarins sem er tímafrekt ferli. Vegurinn þarf þannig að síga áður en hægt verður að ganga frá honum í rétta hæð. Fergingu verður skipt í tvo áfanga til að loka firðinum ekki of mikið í einu, m.a. til að vernda marhálm á svæðinu og til þess að takmarka straumhraða og botnrof.

Þó fjörðurinn sé fremur grunnur fer talsvert efni í fyllingu og grjótvörn. Efnið verður fengið úr skeringum beggja vegna fjarðarins og úr nálægri námu.