Fréttir
  • Vorverkin hjá Vegagerðinni eru komin í fullan gang, enda sumarið handan við hornið. Unnið er hörðum höndum að því að gera við holur sem hafa myndast í bundnu slitlagi á vegum víða um land.
  • Í myndbandi sem tekið var upp á dögunum kemur fram að umhleypingar í veðri, frost og þíða, hafa mikil áhrif á holumyndun á vegum.
  • Holur í bundnu slitlagi eru langt í frá séríslenskt fyrirbæri. Nágrannalöndin finna einnig fyrir auknum holum í leysingum á vorin.
  • Gert er við holur eins fljótt og kostur er, oft í mjög erfiðum aðstæðum innan um þunga umferð.
  • Ef fólk lendir í tjóni þegar það ekur ofan í holu er hægt að fara á vef Vegagerðarinnar og tilkynna tjón.

Sjaldan fleiri holur eftir erfiðan vetur

Unnið að viðgerðum á vegum landsins

20.4.2022

Vorverkin hjá Vegagerðinni eru komin í fullan gang, enda sumarið handan við hornið. Unnið er hörðum höndum að því að gera við holur sem hafa myndast í bundnu slitlagi á vegum víða um land. Í myndbandi sem tekið var upp á dögunum kemur fram að umhleypingar í veðri, frost og þíða, hafa mikil áhrif á holumyndun á vegum.  

„Holur myndast þegar vatn liggur í vegum. Vatn finnur sér alltaf leið. Ef það er t.d. mjög lítil sprunga í malbiki kemst vatn þar undir og safnast fyrir. Þegar vatn frýs eykst rúmmál þess og þegar það þiðnar aftur, er malbikið uppspennt. Ef þungur bíll ekur þar yfir og brýtur það niður getur hola myndast mjög hratt,“ segir Birkir Hrafn Jóakimsson, forstöðumaður á mannvirkjasviði Vegagerðarinnar, í myndbandinu.  

Í máli hans kemur fram að gert sé við holur eins fljótt og kostur er, oft í mjög erfiðum aðstæðum. „Þegar vorið kemur og aðstæður leyfa, förum við annað hvort í heilar yfirlagnir eða staðbundnar viðgerðir á stórum eða litlum holum,“ segir Birkir Hrafn og bendir á að holur séu ekki séríslenskt fyrirbæri.  

„Við hér á Íslandi erum ekki ein um að berjast við holur þegar vorið kemur með sínum leysingum. Ég hef fengið fréttir frá kollegum mínum um allan heim og þetta er alls staðar. Hins vegar erum við illa sett núna eftir mjög þungan vetur,“ segir hann.  

Í myndbandinu er einnig rætt við Ingibjörgu Albertsdóttur, lögfræðing hjá Vegagerðinni. Hún bendir á að ef keyrt sé ofan í vegskemmd sé best að fara inn á heimasíðu Vegagerðarinnar og senda inn tjónstilkynningu með rafrænum hætti. „Hún fer þá í hefðbundið ferli innanhúss þar sem fram fer mat á því hvort bótaskylda sé fyrir hendi,“ segir Ingibjörg.  

Ekki er hægt að koma alveg í veg fyrir að holur myndist, að sögn Birkis Hrafns. „En það er hægt að minnka það,“ segir hann. 

Myndband um holuviðgerðir á vegum