Fréttir
  • Herjólfur í skipasmíðastöðinni

Samið um Herjólf

Vestmannaeyjaferjan kemur fljótlega heim

27.5.2019

Skipasmíðastöðin Crist S.A. hefur samþykkt tilboð Vegagerðarinnar um lokauppgjör vegna smíði Herjólfs og styttist því í að ferjan verði afhent.  Tilboðið hefur verið samþykkt en samningar hafa ekki verið undirritaðir en vænta má þess að það verði gert fljótlega. Tilboðið var sent skipasmíðastöðinni í morgun. 

Vegagerðin hefur átt í stífum samningaviðræðum við skipasmíðastöðina frá því í lok febrúar þegar ljóst var að stöðin krefðist viðbótargreiðslu upp á  8,9 milljónir evra. Sú krafa var að mati Vegagerðarinnar ekki í samræmi við efni samnings um smíði skipsins.  Í núverandi sáttagerð hefur Vegagerðin fallist á að greiða stöðinni viðbót við smíðaverð upp á 1,5 milljónir evra auk þess að falla frá kröfu um tafabætur að andvirði 2 milljóna evra. Það er álit Vegagerðarinnar að með þessu sé fram komin lausn sem báðir aðilar geta við unað um leið og forðað verði  frekara tjóni vegna tafa á afhendingu skipsins. 

Vegagerðin fagnar því að þessi óvenjulega deila er leyst og að það styttist að nýr Herjólfur komi til landsins.  Það er langþráð tilhlökkunarefni að fá nýtt skip í siglingar milli lands og Eyja og bæta þannig samgöngur á þessari mikilvægu siglingarleið.