Samdrátturinn í umferðinni aldrei meiri
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu dróst saman um 21 prósent í mars
Umferðin í mars á höfuðborgarsvæðinu dróst saman um 21 prósent og aldrei hafa viðlíka samdráttartölur sést. Eftir efnahagshrunið 2008 dróst umferðin mest saman um 3,5 prósent á milli mánaða í mars og mesti mældi samdráttur milli mánaða hingað til nemur 9,1 prósenti í apríl 2009. 35 þúsund færri ökutæki fóru um þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu.
Milli
mánaða 2019 og 2020
Það er að
bera í bakkafullan lækinn að tala um fordæmalausa tíma nú um stundir en þessir
tímar eru það svo sannarlega. Eins og áður hefur komið fram í fréttum
Vegagerðarinnar af umferð á höfuðborgarsvæðinu hefur orðið hrun í umferðinni yfir 3
lykilmælisnið á svæðinu. Nú þegar marsmánuður er liðinn mælist
samdrátturinn tæplega 21%, miðað við sama mánuð á síðasta ári. Áður hafði mesti
samdráttur milli mars mánuða mælst milli áranna 2010 og 2011, í kreppunni
miklu, eða sem nam 3,5% og stærsti einstaki samdráttur hingað til varð á milli apríl mánuða
2008 og 2009 eða alls 9,1% samdráttur. Þannig að aldrei áður hafa sést tveggjastafa tölur í
samdrætti á höfuðborgarsvæðinu. Þessi samdráttur er hreinlega af allt annarri stærðargráðu en áður hefur sést og því ná varla yfir þetta nægilega sterk
lýsingarorð.
Mest dregst umferð saman um Hafnarfjarðarveg eða um rúmlega 27% og minnst um Vesturlandsveg eða um tæp 18%. Áður hafði Vegagerðin lýst því að ekki hafi fundist haldbærar skýringar á því hvers vegna Hafnarfjarðarvegurinn dregst hlutfallslega mest saman. Hins vegar, þegar þessi samantekt hófst þá var sniðið svipað að stærð og sniðið á Reykjanesbraut og sniðið um Vesturlandsveg minnst en á síðasta ári var sniðið um Hafnarfjarðarveg orðið lang minnst. Þal hefur umferð um umrætt snið ekki vaxið að sama krafti og um hin tvo sniðin, hvað sem veldur því.
Meðal sólarhringsumferðin um mælisniðin 3 var tæpum 35 þús. ökutækjum minni en í sama mánuði á síðasta ári og jafnast á við meðalumferðina í mars 2014, eða fyrir 6 árum síðan.
Uppsafnað
frá áramótum
Þriðja
mánuðinn í röð mælist samdráttur í umferð á höfuðborgarsvæðinu og með þessum mikla
samdrætti í mars þá hefur umferðin nú dregist saman um tæp 8% miðað við sama
tímabil á síðasta ári. Aldrei áður hefur Vegagerðin mælt þvílíkan samdrátt miðað við árstíma og er hann rúmlega tvöfalt meiri en áður hefur sést nokkurn tíma,
síðan þessi samantekt hófst.
Umferð
eftir vikudögum
Eins og
gera mætti ráð fyrir þá dregst umferð mikið saman í öllum vikudögum en
hlutfallslega mest um helgar og mest á laugardögum eða um tæp 30% en minnst dregst
umferð saman á mánudögum eða um rétt rúmlega 16%. Mest var ekið á
fimmtudögum en minnst á sunnudögum.
Horfur
út árið 2020
Vandasamt
er nú að segja til um horfur út árið en haldist innbyrðis einkenni mánaðarlegrar
umferðar líkt og í venjulegu ári, þrátt fyrir samdrátt, þá má vænta tæplega 7%
samdráttar í árslok. Ef hagkerfið nær sér hins vegar aftur á strik eftir
ekki of marga mánuði þá gæti þessi spá miðað við það verið frekar svartsýn. Ef
það gerist hins vegar ekki gæti þessi spá allt eins verið frekar
bjartsýn. Aldrei áður hefur ríkt svo mikil óvissa um framhaldið á þessum
árstíma í spám Vegagerðarinnar fyrir höfuðborgarsvæðið.
Mesti samdráttur sem áður hefur mælst, í umræddum sniðum milli ára, var 2,4% milli áranna 2009 og 2010 þ.a.l. má sjá hver stærðargráða áætlaðs samdráttar er, sem nú er í kortunum.