Samdráttur í umferðinni á Hringveginum
mikill samdráttur á Suðurlandi
Umferðin á Hringveginum dróst saman um 1,7 prósent í nýliðnum septembermánuði. Það hefur verið lítið um samdrátt í umferðinni liðin misseri en hér vekur athygli að mestur samdráttur er á Suðurlandi og mælist hann heil 8,5 prósent. Eigi að síður má reikna með að í heild aukist umferðin í ár um 2-3 prósent á Hringveginum.
Milli
mánaða 2018 og 2019
Umferðin í
nýliðnum september dróst saman um 1,7% miðað við sama mánuð á síðasta ári yfir 16
lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringveginum. Þetta er í annað sinn sem
samdráttur mælist á milli mánuða á þessu ári en áður hafði umferðin dregist
saman í mars mánuði sem á sér þó skýringar sem snúa að tímasetningu páska. Við
þetta bætist hins vegar líka minnsta mögulega aukning í ágúst sl. eða aukning sem einungis nam 0,1%. Í ljósi þessa má velta því fyrir sér hvort að hagkerfið sé tekið að
kólna, rétt eins og mælingar Seðlabanka og Hagstofu gefa til kynna. Umferðartölurnar styðja þá niðurstöðu því eins og umferðardeild Vegagerðarinnar hefur bent á, í þessum fréttum af umferð, að þá virðist vera mikið samhengi á
milli hagvaxtar og umferðartalna. Þegar grannt er skoða er það kannski heldur ekki skrítið heldur í raun eðlilegt að umferðin fari saman við umsvif í
samfélaginu og því ekki óvænt að hagsveiflur mælist í umferðartölum.
Umferðin jókst einungis á einu landssvæði eða á Vesturlandi um 1,7%. Umferðin dróst hins vegar mest saman um Suðurland eða um 8,5%, sem telja verður talsvert mikið og athyglisvert.

Frá
áramótum 2018 og 2019
Frá
áramótum hefur umferðin aukist um tæp 3% og er það minnsta aukning miðað við árstíma
frá árinu 2012. Mest hefur umferðin aukist um Vesturland en dregist mest
saman um Austurland eða 3%.
Umferð
eftir vikudögum
Það sem af
er ári hefur umferðin aukist í öllum vikudögum en þó hlutfallslega mest á
sunnudögum eða um 6%. Minnst hefur umferðin aukist á mánu- og laugardögum
eða um 1,8%.
Að jafnaði er mest ekið á föstudögum en minnst á þriðjudögum.
Horfur
út árið 2019
Umferðarlíkan
umferðardeildar gerir ráð fyrir 4 – 5% vexti í umferðinni í þremur síðustu
mánuðum ársins. Ef að hagkerfið er hins vegar að kólna verður það að teljast
ólíkleg niðurstaða og gæti aukningin orðið heldur minni en þau 3,3% sem
reiknimódel umferðardeildar gerir ráð fyrir. Ef gengið er út frá 0%
aukningu í næstu mánuðum verður heildar aukning ársins 2,3%. Þ.a.l. mætti
gera ráð fyrir að aukningin verði á þessu bili í árslok.