Samdráttur í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu en mikil umferð á svifryksdegi
meiri umferð á svifryksmánudegi er aðra mánudaga
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í apríl dróst saman um 2,6 prósent og hefur það ekki gerst síðan árið 2014. Umferðin á svokölluðum gráum degi - þegar búist var við miklu svifryki og frítt var í strætó - reyndist tíu prósentum meiri en að meðaltali á mánudögum í apríl. Grái dagurinn bar upp á mánudag.
Milli
mánaða 2018 og 2019
Umferðin í
apríl, yfir þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, dróst
saman um 2,6% milli aprílmánaða 2018 og 2019. Þetta er í fyrsta sinn sem
samdráttur mælist milli aprílmánaða frá því árið 2014 en þá mældist 0,1%
samdráttur.
Samdráttur varð í öllum sniðum en mest dróst umferðin saman yfir mælisnið á Hafnarfjarðarvegi sunnan Kópavogslækjar eða um 5%.
Frá
áramótum milli áranna 2018 og 2019
Núna hefur
umferðin aukist um 0,9%, frá áramótum, borið saman við sama tímabil á síðasta
ári. Leita þarf aftur til ársins 2012 til að finna minni aukningu miðað við árstíma.
Umferð
vikudaga
Mest var
ekið á miðvikudögum í apríl og minnst á sunnudögum. Umferð jókst á
mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum en dróst saman hina dagana. Mest
jókst umferðin á þriðjudögum en mestur varð samdrátturinn á föstudögum eða
rúmlega 14%, sem er fáséður samdráttur.
Þann 8. apríl var svo kallaður grár dagur þegar mikið svifryk var yfir höfuðborginni. Umræddan dag bar upp á mánudag og reyndist umferðin á höfuðborgarsvæðinu um 10% meiri en á meðalmánudegi í apríl, þrátt fyrir að boðið væri upp á frítt í strætó.

Horfur
út árið 2019
Miðað við
það sem liðið er af árinu þá gefa umferðagögn til kynna að umferðin gæti
aukist nokkuð eða í kringum 5,5%, en haldi áfram að draga úr umferð á næstu
mánuðum má búast við því að aukningin, ef hún verður, verði ekki svona mikil.