Fréttir
  • Ráðstefnan verður haldin föstudaginn 28. október á Hilton hóteli.

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 28. október

Haldin á Hilton hóteli

8.9.2022

Árleg Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar verður haldin í 21. sinn föstudaginn 28. október næstkomandi og fer fram á Hilton hóteli Suðurlandsbraut.

Ráðstefnan hefur skapað sér sérstöðu í ráðstefnuhaldi hér á landi því fáar ráðstefnur bjóða upp á jafn fjölbreytileg umfjöllunarefni. Ætíð kennir margra grasa á ráðstefnunni enda tekin fyrir um 20 rannsóknarverkefni hverju sinni. Styrkur rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar hefur legið í því að styrkja verkefni á mjög breiðu fræðasviði þar sem ekki endilega er einblínt á hefðbundna vegagerð. Verkefnin falla þó undir fjóra almenna flokka sem eru: mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag.

Ráðstefnan hefur alla jafna verið fjölsótt af starfsfólki Vegagerðarinnar, starfsfólki ráðgjafa- og verkfræðistofa, verktaka og almenns áhugafólks um samgöngur og rannsóknir.

Á ráðstefnunni í ár verður mest fjallað um rannsóknir sem fengu fjárveitingar úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar árið 2021 en þó er það ekki einhlítt. Opnað verður fyrir skráningu í byrjun október.

Stefnt er að því að dagskrá liggi fyrir í byrjun október.