Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2017
Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar föstudaginn 27. október 2017.
Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar verður haldin í Hörpu, föstudaginn 27. október 2017.
Þetta er sextánda ráðstefnan, en kveðið er á í vegalögum um að 1,5% af mörkuðum tekjum til vegamála skuli renna til rannsókna- og þróunarstarfs og er ráðstefnunni ætlað að endurspegla afrakstur hluta þess starfs.
Vegagerðin vinnur að innleiðingu Grænna skrefa í ríkisrekstri og hvetur þátttakendur til huga að lágmörkun umhverfisáhrifa, svo sem með notum á vistvænum ferðamáta til og frá ráðstefnunni og taka þátt í úrgangsflokkun á staðnum.
Hægt er að skrá sig á ráðstefnuna á þessum hlekk .
Þátttökugjald er 15.000 krónur og 4.000 krónur fyrir nema og eftirlaunaþega.
Rannsóknir Vegagerðarinnar 2017 | |
---|---|
08:00 - 09:00 | Skráning |
09:00 - 09:15 | Setning, Þórir Ingason (Vegagerðin) |
09:15 - 09:30 | Endurvinnsla steypu í burðarlög vega, Þorbjörg Sævarsdóttir (Efla). Ágrip |
09:30 - 09:45 | Efni til innþéttingar sprungna í slitlagi brúa, Gísli Guðmundsson, (Mannvit). Ágrip |
09:45 - 10:00 | Yfirborðsmerkingar, ending og efnisnotkun, Arna Kristjánsdóttir og Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir, (Efla). Ágrip |
10:00 - 10:15 | Samband lektar og bergstyrks í storkubergi, Guðjón Eggertsson (University of Liverpool). Ágrip |
10:15 - 10:45 | Kaffi |
10:45 - 11:00 | Brotholur í malbiki, Ólafur Wallevik, Ásbjörn Jóhannesson og Hafsteinn Hilmarsson (Nýsköpunarmiðstöð Íslands). Ágrip |
11:00 - 11:15 | Yfirborð brúa, Gylfi Sigurðsson (Vegagerðin). Ágrip |
11:15 - 11:30 | Stífnieiginleikar jarðvegs metnir með greiningu yfirborðsbylgna, Elín Ásta Ólafsdóttir, Sigurður Erlingsson, Bjarni Bessason, (Háskóli Íslands). Ágrip |
11:30 - 11:45 | Leiðsaga til sjós og staðsetningar á Íslandi með aðstoð gervitungla, Sæmundur Þorsteinsson (Háskóli Íslands). Ágrip |
11:45 - 12:00 | Umræður og fyrirspurnir |
12:00 - 13:00 | Matur |
13:00 - 13:15 | Kortlagning veghita með áherslu á hálkustaði, Elín Björk Jónasdóttir (Veðurstofan). Ágrip |
13:15 - 13:30 | Meðalhraðaeftirlit - innleiðingaráætlun, Vilhjálmur Hilmarsson (Mannvit). Ágrip |
13:30 - 13:45 | Ferðir á einstakling - Samanburðarathuganir á gerð og úrvinnslu ferðavenjukannana hérlendis og erlendis, Smári Ólafsson (VSÓ). Ágrip |
13:45 - 14:00 | Tenging hjólanets höfuðborgarsvæðis við umliggjandi þjóðvegi, Hörður Bjarnason (Mannvit). Ágrip |
14:00 - 14:15 | Talningar á hjólreiðaumferð - bætt aðferðarfræði talninga með leitun til nágrannalanda, Kristjana Erna Pálsdóttir (VSÓ). Ágrip |
14:15 - 14:30 | Plastic recycled in roads: feasibility study on the use of plastic waste for road paving in Iceland, Jamie McQuilkin (ReSource International) - [erindi flutt á ensku]. Ágrip |
14:30 - 14:45 | Umræður og fyrirspurnir |
14:45 - 15:15 | Kaffi |
15:15 - 15:30 | Umhverfisvitund starfsmanna stofnana og fyrirtækja - mæling og þróun, Ólöf Kristjánsdóttir og Sandra Rán Ásgrímsdóttir (Mannvit). Ágrip |
15:30 - 15:45 | Greining á vistvottunarkerfum fyrir innviðaverkefni Vegagerðarinnar, Gyða Mjöll Ingólfsdóttir (Efla). Ágrip |
15:45 - 16:00 | Sjálfbærnismat á leiðum til aukinnar rafmagnsvæðingar í samgöngum, Reza Fazeli (Háskóli Íslands) - [erindi flutt á ensku]. Ágrip |
16:00 - 16:15 | Mat á árangri endurheimtar votlendis, Þórdís Björt Sigþórsdóttir (Háskóli Íslands). Ágrip |
16:15 - 16:30 | Grímsvatnahlaup: vatnsgeymir, upphaf og rennsli, Finnur Pálsson (Háskóli Íslands) [Erindið fellur niður] |
16:30 - 16:45 | Setflutningar og farvegabreytingar Leirár á Mýrdalssandi, Magnús T. Guðmundsson (Háskóli Íslands). Ágrip |
16:45 - 17:00 | Umræður og fyrirspurnir |
17:00 - | Ráðstefnuslit, léttar veitingar í boði Vegagerðarinnar |
Glærur og ágrip fyrirlestra verður hægt að finna á vef Vegagerðarinnar að ráðstefnu lokinni | |