Fréttir
  • Kort sem sýnir hvernig umferð af rampinum liggur eftir nýja veginum og inn á núverandi akbraut til norðurs.
  • Búið er að opna fyrir umferð um nýjan ramp frá Hádegismóum inn á Suðurlandsveg til norðurs.
  • Áður en framkvæmdir hófust vorið 2020.
  • Á framkvæmdatíma.
  • Búið er að malbika veginn.
  • Verktakinn vinnur nú að því að lengja undirgöngin norðanmegin.

Rampur frá Hádegismóum opnaður að nýju

Vinna við tvöföldun Suðurlandsvegar milli Vesturlandsvegar og Bæjarháls gengur vel

21.8.2020

Rampur frá Hádegismóum inn á Suðurlandsveg til norðurs hefur verið opnaður að nýju en hann  hefur verið lokaður fyrir umferð undanfarið vegna framkvæmda við tvöföldun Suðurlandsvegar frá Vesturlandsvegi að Bæjarhálsi.

Verkefnið við tvöföldun Suðurlandsvegarins á þessum stað hófst í vor en verktakinn er Óskatak. Verkið felst í að ljúka við gerð eystri akbrautar Suðurlandsvegar, að tengja nýja akbraut í norður og suðurenda við núverandi vegakerfi, hækka brunna og tengja niðurföll við núverandi lagnir, uppsetning ljósa og vegriða. Þá er einn stærsti hluti framkvæmdarinnar að breikka núverandi undirgöng þar sem Krókháls fer undir Suðurlandsveg.

Framkvæmdin gengur vel að sögn Einars Más Magnússonar verkefnastjóra hjá framkvæmdadeild Vegagerðarinnar. Búið er að ljúka við tvöföldun vegarins og malbika. Lokið er við tengingu við ramp sem liggur frá Hádegismóum á Suðurlandsveg til norðurs og verður þannig hægt að aka á einni akrein nýja vegarins sem beygir inn á núverandi akbraut til norður.

Nú stendur yfir vinna við tvöföldun undirganganna. Vinna við norðurhluta ganganna klárast eftir þrjár til fjórar vikur. Eftir það færist umferð um Krókháls yfir á nyrðri akreinina meðan verktaki lengir göngin til suðurs. Umferð um Krókháls undir Suðurlandsveg er á einni akrein á framkvæmdatíma undirganganna og umferð stjórnað með ljósum.

Áætlað er að framkvæmdum verði lokið haustið 2020 og er verkið nokkurn veginn á áætlun.