Fréttir
  • Umferðin hlutfallsleg breyting
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin eftir vikudögum
  • Umferðin eftir mánuðum
  • Umferðin uppsafnað

Óvænt aukning umferðar í júní á höfuðborgarsvæðinu

Umferðin jókst um 1,2 prósent

3.7.2020

Umferðin í júní á höfuðborgarsvæðinu jókst um 1,2 prósent sem kom á óvart en þetta er fyrsti mánuður þessa árs þar sem umferðin í mánuðinum er meiri en umferðin í sama mánuði ári fyrr. Athygli vekur að það er aukin umferð á mánudögum sem stendur undir allri aukningunni. Skýringar á aukinni umferð á mánudögum eru ekki augljósar.

Nokkuð óvænt reyndist umferðin í nýliðnum júní 1,2% meiri en í sama mánuði á síðasta ári, mest jókst umferðin í mælisniði á Reykjanesbraut eða um 3,2% en 1,6% samdráttur mældist í mælisniði á Hafnarfjarðarvegi. Aðeins í júní 2018 hefur mælst meiri umferð um lykilmælisniðin þrjú.

Umferð eftir vikudögum
Svo virðist sem umferð á mánudögum, í nýliðnum mánuði hafi tekið stórt stökk uppávið því hún mældist tæpum 12% meiri en á mánudögum í sama mánuði fyrir ári síðan.  Mánudagar er jafnframt eini vikudagur mánaðarins sem sýnir aukningu á milli ára í júní þ.a.l. ber hann uppi umrædda aukningu.  Athygli vekur að aukningin á mánudögum er lang mest í öllum sniðum.

Horfur út árið
Núna segir reiknilíkan umferðardeildar að von sé á rúmlega 9% samdrætti í umferð á höfuðborgarsvæðinu, fyrir árið í heild. Ekki er ósennilegt að samdrátturinn í umferðinni verði svipaður samdrætti í hagvexti ársins þar sem gert er ráð fyrir um 8% samdrætti í ár, samkvæmt því sem fram kemur á heimasíðu Seðlabankans.

Talnaefni