Fréttir
  • Umferðin samanlagt
  • Umferðin hlutfallsleg breyting
  • Umferðin eftir mánuðum
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin eftir vikudögum

Óvænt aukning í umferðinni á Hringvegi í janúar

nokkur mikil aukning varð á milli ára

2.2.2023

Umferðin í janúar 2023 reyndist sú mesta sem mælst hefur í janúarmánuði. Umferðin jókst töluvert mikið eða um 12,6 prósent miðað við janúar 2022. Fyrra met var sett í janúar 2019 en núna var umferðin ríflega tveimur prósentum meiri en þá. Líklegt verður að telja að mikil vetrarferðamennska skýri aukninguna að einhverju leyti því veðrið var ekki alltaf upp á sitt besta í nýliðnum janúar.

Milli mánaða 2023 og 2022
Fyrir lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi þennan fyrsta mánuð ársins, reyndist umferðin sem sé sú mesta sem mælst hefur frá upphafi mælinga í janúar.  Eða 12,6% meiri en á síðasta ári og 2,1% meiri en fyrra metið.

Mest jókst umferðin um mælisnið á Suðurlandi eða um 18,2% en minnst á Austurlandi eða um 2,3%.

Af einstaka mælisniðum jókst umferðin mest yfir mælisnið á Mýrdalssandi eða um 43,1%. Minnst jókst umferð um mælisnið á Fagradal eða um 0,1%.

 

Samanburðartafla








Umferð eftir vikudögum
Umferðin reyndist hafa aukist talsvert alla vikudaga nema á mánudögum, en þar varð lítilsháttar samdráttur.

Mest var ekið á fimmtudögum í nýliðnum janúar, en jafnan og yfirleitt er mest ekið á föstudögum. Minnst var ekið á mánudögum.