Fréttir
  • Opnun mislægra gatnamóta Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar

  • Nýju mislægu gatnamótin, Hersir Gíslason tók myndina

Nýr ráðherra klippti á borða og opnaði mislæg gatnamót

klippt með tveimur fulltrúum Hafnarfjarðarbæjar

15.12.2017

Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra klippti á borða til að hleypa umferð á ný mislæg gatnamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar. Með honum klipptu þær Rósa Guðbjartsdóttir og Guðlaug Kristjánsdóttir frá Hafnarfjarðarbæ. Nýr ráðherra kallaði einnig til sögunnar Jón Gunnarsson fráfarandi ráðherra. Gatnamótin leysa af hólmi hættuleg gatnamót á þessum stað og auka þannig umferðaröryggið.

Klippt var á borða við hringtorg á veginum undir brúnni á mislægu gatnamótunum. Verkefnið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Hafnarfjarðar. Sjá frétt um verkið hér . Það voru þeir Andrés Konráðsson Loftorku og Dofri Eysteinsson Suðurverki sem héldu borðanum á lofti en þeir voru aðalverktakar í verkinu. Hreinn Haraldsson vegamálastjóri ítrekaði mikilvægi þessa verks vegna umferðaröryggisins og benti á að Jón Gunnarsson í sinni ráðherratíð hefði þrýst á að farið yrði í verkið. Samgönguráðherra ítrekaði einnig mikilvægi framkvæmdarinnar. 

Nýju mislægu gatnamótin nýtast þó ekki að fullu fyrr en lokið verður við að tvöfalda Reykjanesbrautina frá Hafnarfirði að þessum gatnamótum. Og þá bíður einnig tvöföldun framhjá álverinu í Straumsvík að tvöfaldri Reykjanesbrautinni þar fyrir sunnan.