Fréttir
  • Vetrarþjónusta

Þjónustan um áramótin

á nýársdag er þjónustað á þeim leiðum sem hafa 7 daga þjónustu

29.12.2014

Þjónustan um áramótin verður þannig að einungis á þeim leiðum sem hafa 7 daga þjónustu verður þjónusta á nýársdag, undanskildar eru þó langleiðir um strjálbýl svæði milli byggðarlaga. Stefnt er að því að þá verði þessar leiðir almennt færar upp úr kl. 10:00. 

Á gamlársdag er gert ráð fyrir þjónustu til kl. 14:00 en ef þörf krefur til kl. 16:00. Það á þó ekki við um lengstu leiðir svo sem á Djúpvegi frá Súðavík til Hólmavíkur, Vestfjarðarvegi austan Brjánslækjar, frá Mývatni til Egilsstaða og frá Höfn til Víkur. Þar hættir þjónusta í síðasta lagi kl. 14:00.  

Frekari upplýsingar eru veittar í síma 1777 hjá umferðarþjónustu Vegagerðarinnar.

Færð á vegum er ekki könnuð á vettvangi nema á umferðarþyngstu vegum. Upplýsingar um færð og veður taka annars mið af gögnum frá veðurstöðvum og myndavélum.

Vegagerðin óskar landsmönnum öllum farsæls komandi árs.