Fréttir
  • Vígsla brúar yfir Múlakvísl
  • Vígsla brúar yfir Múlakvísl
  • Vígsla brúar yfir Múlakvísl
  • Vígsla brúar yfir Múlakvísl
  • Vígsla brúar yfir Múlakvísl
  • Vígsla brúar yfir Múlakvísl
  • Vígsla brúar yfir Múlakvísl

Ný brú á Múlakvísl tekin í notkun

innanríkisráðherra og vegamálastjóri klipptu á borða

6.8.2014

Innanríkisráðherra Hanna Birna Kristjánsdóttir klippti á borða á nýrri brú yfir Múlakvísl með aðstoð Hreins Haraldssonar vegamálastjóra í dag 6. ágúst. Hin 160 m langa brú var þannig formlega tekin í notkun.


Hlaup varð í Múlakvísl undir morgun laugardaginn 9. júlí 2011 og eyðilagði 130 m langa brú sem byggð var árið 1990 og rauf þar með Hringveginn. Samdægurs var hafist handa við undirbúning að smíði bráðbirgðabrúar en Vegagerðin á ávallt til reiðu efni í slíkar brýr. Á sjö dögum var byggð 156 m löng einbreið bráðabirgðabrú. Opnað var fyrir umferð á hádegi laugardaginn 16. júlí.

Nýja brúin sem nú er tekin í notkun er 162 m löng eftirspennt bitabrú í fimm höfum og 10 m að breidd. Nýr vegur er um 2,2 km að lengd og er breidd hans 8 m.

Brúargólfið á nýju brúnni er 2 m hærra en var á eldri brú og lágpunktar eru hafðir í veginum sitthvoru megin brúar til þess að flóð af þeirri stærðargráðu sem varð í júlí 2011, taki ekki af brúna en rjúfi þess í stað veginn. Í austanverðum farveginum ofan brúar voru byggðir um 5,6 km langir varnargarðar upp með ánni, þar af er 2,5 km ógrjótvarinn bakgarður með 11 grjótvörðum leiðigörðum. Tilgangur þessara garða er að beina ánni undir brúna og varna miklu jarðvegsrofi. Auk þessa eru 2 grjótvarðir varnargarðar ofar til að verjast rofi á bakkanum sem er þar allt að 10 m hár og er eingöngu úr vikri frá Kötlu.

Hreinn Haraldsson vegamálastjóri þakkaði sérstaklega starfsmönnum Vegagerðarinnar sem komu að því að smíða bráðabirgðabrú á aðeins 7 dögum þegar mikið lá við. Hann þakkaði einnig verktökum Eykt og Þjótanda og undirverktökum þeirra og öllum sem komið hafa að smíði nýju brúarinnar. Þeir hafa unnið mjög gott verk, sagði Hreinn, og þar að auki mánuði á undan áætlun.

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra að sama skapi þakkaði Vegagerðarfólki og vegamálastjóra fyrir hið ótrúlega afrek að smíða brú á 7 dögum, það bæri að þakka. Það er merki um það hvernig staðið er að hlutunum hjá Vegagerðinni, sagði Hanna Birna, og vitnaði til vegamálstjóra sem hafi lýst því þannig að Vegagerðin ætti alltaf efni á lager í svona brú og menn hafi gengið til lagers og hafist handa. Hún þakkaði einnig verktökum og öðrum þeim sem komið hafa að gerð nýju brúarinnar og óskaði heimamönnum til hamingju með mannvirkið. Sagði það nokkuð öðruvísi að opna mannvirki úti á landi en í Reykjavík þar sem öllu jafna hefðu ný mannvirki svo mikil áhrif á samfélagið og fólk úti á landi. Þetta þætti henni skemmtilegt verk og nú þegar mikið væri spurt um dagbókarfærslur hennar þá vildi hún óska þess að borðaklippingar væru fastur liður í dagbókinni. 


Á myndunum má meðal annarra sjá Hrein Haraldsson vegamálastjóra, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, Einar Hafliðason forstöðumann brúardeildar Vegagerðarinnar (en hann hefur nýlátið af störfum), skæravörðinn Birnu Sólveigu Kristófersdóttur, heiðursmenn Vegagerðarinnar Ágúst Frey Bjartmarsson og Hauk Pálmason auk nokkurra þingmanna og ráðherra Suðurkjördæmis.