Fréttir
Opið fyrir styrkumsóknir vegna rannsóknaverkefna
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til rannsóknaverkefna fyrir árið 2014
Vegagerðin veitir árlega styrki til rannsóknaverkefna, sem fjármagnaðir eru að mestu af svonefndu tilraunafé, en samkvæmt vegalögum er það 1,5% af mörkuðum tekjum stofnunarinnar.
Nú er auglýst eftir umsóknum um styrki og/eða fjármögnun einstakra verkefna fyrir árið 2014. Umsóknir þurfa að berast á tilskildum eyðublöðum í seinasta lagi að kvöldi miðvikdagsins 5. febrúar 2014. Eyðublöðin og nánari upplýsingar má nálgast hér.