Fréttir

"Closed" kemur í stað "Ófært" á ljósaskiltum Vegagerðarinnar

Til að auðveldara verði að ná til ferðamanna

17.9.2013

Sú breyting hefur verið gerð á ljósaskiltum Vegagerðarinnar að í stað þess að þar standi "ÓFÆRT" þegar svo háttar til kemur enski textinn "CLOSED". Þetta er gert til að freista þess að ná betur til erlendra ferðamanna.


Það er gömul saga og ný að erfitt hefur reynst að koma færðar- og veðurupplýsingum til erlendra ferðamanna. Um langt skeið hefur verið komið fyrir upplýsingum á stýri bílaleigubíla til að freista þess að benda óvönum ökumönnum á séríslenskar aðstæður. Það dugir þó ekki til þegar óveður skellur á. Í því ljósi hefur Vegagerðin ákveðið að í vetur verði erfiðum fjallvegum og/eða ferðamannavegum lokað með slá þegar þörf er á því vegna ófærðar. Sjá frétt frá í gær. 

Í dag var svo ákveðið að breyta orðanotkuninni á ljósaskiltum sem finna má víða á vegakerfinu þannig að auðveldara verði að ná til ferðamanna og annarra erlendra ökumanna.

Á myndinni sem fylgir fréttinni má sjá dæmi um hvernig þetta getur litið út.