Fréttir
  • Múlagöng

Endurbætur á rafbúnaði Múlaganga

Göngin lokuð nokkrar nætur í undirbúningi fyrir framkvæmdir

12.9.2013

Múlagöng verða lokuð í nótt frá 23:00-06:30. Lokað verður fleiri nætur í september en unnið er að undirbúningi enn frekari framkvæmda í  vetur en gerðar verða umfangsmiklar endurbætur á rafbúnaði ganganna.

Um framkvæmdirnar:
Tilgangur með þessum framkvæmdum er fyrst og fremst sá að auka umferðaröryggi.
Rafbúnaður verður m.a. endurbættur og aukin, lýsing aukin verulega, öll skilti verða upplýst auk þess sem fjarskiptakerfi verður sett í göngin svo eitthvað sé nefnt. Gert er ráð fyrir
að þetta verk hefjist í nóvember nk. og standi yfir til vors 2014.
 
Áður en vinna hefst við endurbætur á rafbúnaðinum þarf að sprengja út tvö lítil tækjarými í göngunum og styrkja þau með sprautusteypu. Að auki mun fara fram minni háttar viðhald á steypu í göngum. Þessi vinna er nú í gangi og mun standa yfir mestan hluta septembermánaðar. Loka þarf göngunum fyrir umferð nokkrar nætur meðan unnið er að sprengingum og steypuvinnu. Lokunin mun vara frá 23:00 á kvöldin og til 06:30 á morgnana aðfararnætur þriðjudaga til föstudaga.  Lokun ganganna mun verða auglýst sérstaklega í hvert sinn. Það skal tekið fram að viðbragðsaðilar geta farið um göngin án tafa þó lokun standi yfir. Búast má við minni háttar umferðartöfum að öðru leyti meðan á framkvæmdum stendur. 

Vegagerðin vonar að vegfarendur taki þessu vel og sýni ýtrustu aðgát við akstur í göngunum meðan á þessu stendur.