Fréttir

Eftirlit í Kjálkafirði í dag - lokað í nótt

Sérstök vakt verður í Kjálkafirði

24.5.2013

Sérstök vakt verður við framhlaupið í Kjálkafirði á sunnanverðum Vestfjörðum í dag og síðan verður veginum lokað á miðnætti og stefnt að því að opna aftur klukkan átta á laugardagsmorgun. Á laugardag verður áfram vakt að deginum til og aðstæður metnar að nýju. Ástæða þessa er úrkoman sem verður á svæðinu í dag sem eykur hættuna á frekari skriðuföllum.

Til þess gæti komið fyrirvaralítið að loka þurfi veginum og eins verða aðstæður metnar í fyrramálið, hafi áhættan aukist um nóttina gæti komið til þess að ekki yrði hægt að opna veginn fyrr en síðar en klukkan átta.