Fréttir
  • Umferðin eftir mánuðum
  • Spá fyrir 2013

Mikil aukning í umferðinni í febrúar

aukning bæði í janúar og febrúar

1.3.2013

Umferðin í febrúar, á 16 völdum talningarstöðum á Hringveginum, jókst um 6,3 prósent frá því í febrúar í fyrra. Þetta er mesta aukning umferðar milli febrúarmánaða síðan árið 2006.

Umferðin hefur aukist í öllum landssvæðum í janúar og í febrúar og það hefur heldur ekki gerst síðan árið 2006. Frá áramótum hefur umferðin aukist um 8,9 prósent sem er mikil aukning, sérstaklega í ljósi þróunarinnar undanfarin misseri. Hugsanlegt er að hér ráði tíðarfarið einhverju en greiðfært hefur verið að miklu leyti á þessu tímabili.

 

Milli mánaða 2012 og 2013:

Umferðin í febrúar sl. var 6,3% meiri á Hringveginum en í sama mánuði árið 2012. Þetta er mesta aukning síðan árið 2006 þegar umferðin jókst um 9,6% milli sömu mánaða milli ára og svipuð aukning og átti sér stað árið 2007.

Aukning mælist í öllum landshlutum og mest eykst umferðin um Suðurland eða 10,1% og minnst um Austurland eða um 0,6%.

 

Frá áramótum; milli áranna 2012 og 2013:

Umferðin hefur nú aukist í öllum landssvæðum bæði í janúar og febrúar milli ára. Það hefur ekki gerst síðan árið 2006, þegar fyrst var farið að bera þessar tölur saman.

Samtals frá áramótum hefur umferðin nú aukist um 8,9% milli ára. Þetta verður að teljast gríðarleg aukning þótt umferðarmagnið sem slík eigi nokkuð í land með að ná fyrra magni.

T.d. var umferðin í janúar svipuð og árið 2006 og 2011 en í febrúar er umferðin nokkru meiri miðað við árstíma þ.e.a.s. einungis árin 2007, 2008 og 2009 hafa mælst hærri á þessum tíma.

Umferðin hefur aukist mest á Suðurlandi frá áramótum eða um 15,6% og minnst um Norðurland eða um 2,4%.

Hafa verður í huga, í þessu sambandi, að fyrir utan mikinn samdrátt undanfarinna ára þá hefur verið óvenju góð tíð það sem af er ári, sem gæti að hluta til skýrt þessa miklu aukningu nú.

 

Talnaefni er hér að finna.

 

 

 

SamabFebruar2013