Fréttir
  • Nesjavallavegur lokaður
  • Nesjavallavegur lokaður
  • Nesjavallavegur lokaður
  • Nesjavallavegur lokaður
  • Nesjavallavegur lokaður

Nesjavallaleið lokað í vetur

veginum hefur verið lokað af öryggisástæðum

20.2.2013

Nesjavallaleið hefur verið lokað fyrir umferð í vetur. Engin vetrarþjónusta hefur verið á Nesjavallaleið og hafa aðstæður til aksturs verið mjög mismunandi. Á tíðum hefur verið mjög hált á veginum eða hann ófær. Að ósk Orkuveitu Reykjavíkur hefur verið ákveðið að loka veginum.

 
Lokunin hefur þegar átt sér stað og verður opnað aftur þegar aðstæður leyfa í vor. Skilti með upplýsingum um að vegurinn væri ekki þjónustaður að vetri til voru uppi en nú hafa verið sett upp skilti um lokun auk lokunar á veginum sjálfum.