Minni umferð á Hringveginum í september
spá um óbreytta umferð í ár breytist ekki
Þrátt fyrir að umferðin á Hringveginum, 16 völdum stöðum, hafi dregist nokkuð saman í september spáir Vegagerðin því áfram að umferðin í ár verði sú sama á Hringveginum og hún var í fyrra. Samdrátturinn í september nam 2,3 prósentum og hefur umferðin í ár dregist saman um 0,4 prósent.
Þessi niðursstaða er alveg í samræmi við spá Vegagerðarinnar í ágúst og því er reiknað með að umferðin í ár verði óbreytt. Umferðin í september hefur núna dregist saman öll ár síðan árið 2007.
Milli mánaða 2011 og 2012:
Umferð á Hringvegi dróst samtals saman um 2,3% milli mánaða. Mest dróst umferð saman á Norður og Vesturlandi eða um rúmlega 6%. Umferð á Hringvegi um Austurland sýndi mikla aukningu, aftur á móti, eða 8,5% á milli sept. mánaða. Vægi Austurlands, í heildinni, er lítið og því hefur þessi mikla aukning þar lítil áhrif.
Sé litið aftur í tímann þá kemur í ljós stanslaus samdráttur í september umferð frá árinu 2007. Nú er svo komið að minni umferð í september hefur ekki mælst síðan árið 2005, sjá meðfylgjandi töflu og stöplarit er sýnir meðalumferðar eftir mánuðum.
Á einstaka talningastöðum þá dregst umferð mest saman á Mýrdalssandi um 14% en eykst mest á Hvalsnesi í Lóni eða um 27%. Á báðum þessum stöðum er umferðin lítil í samanburði við flesta aðra staði, lykilteljaravalsetts, því hafa þessar sveiflur lítil áhrif á heildina.
Milli ára 2011 og 2012:
Frá áramótum hefur orðið örlítill samdráttur eða 0,4%. Mest munar um mikinn samdrátt sem orðið hefur á Norður- og Vesturlandi eða annarsvegar 2,5% og hins vegar 3,1%.
Umferðin virðist aftur á móti vera aukast í öðrum landshlutum. Mest eykst umferðin á Austurlandi eða 7,5% en 0,8% á Suðurlandi og 0,3% á Hringvegi um og við höfuðborgarsvæðið (nánar verður fjallað um umferð innan höfuðborgarsvæðis síðar) .
Horfur út árið 2012:
Niðurstöður september mánaðar urðu algerlega í takt við áætlanir Vegagerðarinnar, því hafa horfur ekki breyst frá því að ágúst tölur lágu fyrir.
Áfram er því gert ráð fyrir svipaðri umferði á Hringveginum eða hún standi í stað miðað við árið 2011.