Vegfarendur kynni sér hálkuvarnir - allar upplýsingar á vefnum
Yfirlit yfir hvar er hálkuvarið er að finna á vef Vegagerðarinnar
Nú rennur upp tíð hálku með leysingunum í dag og því gott fyrir vegfarendur að kynna sér hálkuvarnir Vegagerðarinnar, hvar er hálkuvarið, hvar í hálku og hvar í flughálku. Nákvæmar upplýsingar um þetta er að finna hér á vef Vegagerðarinnar.
Með því að smella á "Umferð og færð" og þar undir á "Snjómokstur" má finna ítarlegar upplýsingar. Sjá dæmi hér fyrir neðan:
Fyrst er smellt á "Umferð og færð":
Síðan er smellt á "Snjómokstur":
Þá opnast þessi mynd. Hér er hægt að velja svæði, eða smella á stað á kortinu. Í þessu dæmi er Norðvestursvæði - Vesturland valið:
Þá kemur upp mynd af Vesturlandi og lýsing á mokstursdögum og þá hvernær er þjónusta á hverjum kafla fyrir sig. Neðar á síðunni eru svo þjónustuflokkarnir sem segja til um hvernig þjónustan er á hverjum kafla. Til að komast að því hvernig er hálkuvarið þarf enn að smella. Í dæminu er smellt á Snæfellsnesvegur, Borgarnes Vegamót:
Þá kemur upp þessi síðasta mynd, ef skrollað er niður, og þar má sá hvernig er mokað og hvernig hálkuvörnum er háttað. Mikilvægt er að kynna sér hvar er hálkuvarið: